Tíu rit tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis

Samsett mynd af þeim bókum sem tilnefndar eru til viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2024.
Þær bækur sem tilnefndar eru til viðurkenningar Hagþenkis í ár.Samsett mynd

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu í dag. Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu.

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í febrúar og hlýtur verðlaunahafinn viðurkenningarskjal og 1.500.000 kr.

Eftirfarandi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2024:

Árni Heimir Ingólfsson

Tónar útlagannaÞrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

„Vel skrifuð örlagasaga þriggja einstaklinga sem umbyltu tónlistarmenningu landsins. Bókin er ríkulega studd heimildum og prýdd mörgum myndum.“

Ásdís Ingólfsdóttir

Undirstaðan – Efnafræði fyrir framhaldsskóla. Útgefandi Iðnú.

„Vandað kennsluefni í rafrænu formi sem kynnir undirstöðuatriði efnafræðinnar. Efnið er lagað að nútímaþörfum nemenda og kennara með margs konar innbyggðum hjálpartækjum auk fjölda vísana í ítarefni sem nálgast má á veraldarvefnum.“

Erla Hulda Halldórsdóttir

Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809–1871. Útgefandi Bjartur.

„Áhrifarík ævisaga sem varpar nýju ljósi á 19. öldina og veitir einstaka innsýn í heim kvenna. Byggir á ómetanlegum bréfum Sigríðar til bróður síns sem spanna hálfa öld.“

Guðjón Friðriksson 

Börn í Reykjavík. Útgefandi Forlagið.

„Fræðandi og forvitnileg bók um þær stórfelldu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi og aðstæðum barna í borginni í hálfa aðra öld. Fallegur prentgripur með fjölda einstakra ljósmynda.“

Guðmundur Jónsson (ritstjóri)

Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi. Útgefandi Sögufélag.

„Yfirgripsmikið verk sem er afrakstur margra ára rannsókna á lífsháttum á Íslandi við upphaf 18. aldar. Unnið er á nýstárlegan, þverfaglegan hátt úr frumheimildum sem eru einstæðar á alþjóðavísu.“

Gunnar Harðarson

Fingraför spekinnar. Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

„Vandað og vel skrifað ritgerðasafn sem varpar nýju ljósi á heimspekilega hugsun í íslenskum fornritum. Hugmyndir, hugtök og rökfærslur eru skýrð í ljósi heimspeki miðalda.“

Ingunn Ásdísardóttir

Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir í nýju ljósi. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

„Höfundur kannar frumheimildir um jötna og jötnameyjar í norrænum kveðskap og fornminjum óháð túlkun kristinna miðaldamanna og kemst að frumlegum og áhugaverðum niðurstöðum í aðgengilegu fræðiriti.“

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir

Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum. Útgefandi Forlagið

„Fróðleg og falleg barnabók sem opnar persónulega leið inn í sögu merkilegs safns. Samspil myndefnis og texta varpar áhugaverðu ljósi á árdaga íslenskrar nútímalistasögu.“

Skafti Ingimarsson

Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968. Útgefandi Sögufélag.

„Mikilvægt innlegg í íslenska stjórnmálasögu tuttugustu aldarinnar. Verkið veitir nýja innsýn í þátttöku almennings í flokksstarfi og verkalýðsbaráttu um land allt.“

Þórir Óskarsson

Svipur brotanna. Líf og list Bjarna Thorarensen. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

„Metnaðarfull ævisaga byggð á ítarlegum rannsóknum og hugmyndasögulegri greiningu. Ljóðlist skáldsins er sett í samhengi við þjóðlegan arf og alþjóðlega strauma.“

Fólk sem hlaut tilnefningu til Hagþenkis.
Tilnefnd.Hagþenkir

Viðurkenningarráð Hagþenkis er skipað fimm félagsmönnum til tveggja ára í senn og í því eru: Halldóra Jónsdóttir, Kristján Leósson, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Unnur Þóra Jökulsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastýra Hagþenkis, sér um verkstjórn ráðsins sem hefur hist vikulega síðan um miðjan október.

Fréttina skrifað Anna María Björnsdóttir ruv.is