fræðslu- og heimildamyndIR

Starfsstyrkir vegna handritsgerðar fræðslu- og heimildarmynda

Hagþenkir veitir styrki vegna handritsgerðar fræðslu – og heimildamynda,  þegar og ef ómerkt fé hefur borist frá IHM. Auglýst er á haustin og ber að sækja um á þar tilgerðu rafrænu eyðublaði á heimasíðu Hagþenkis – í gegnum mínar síður. Úthlutunarnefndin er skipuð þremur félagsmönnum, til tveggja ára í senn, metur umsóknir og ákvarðar styrkina. 

Reglur um úthlutun starfsstyrkja vegna fræðslu- og heimildarmynda

  1. Rétt til að sækja um starfsstyrk hafa handritshöfundar fræðslu- og heimildarmynda sem verða sýndar í sjónvarpi eða gefnar út á myndriti.
  2. Styrki er heimilt að nýta til að greiða laun eða annan kostnað við undirbúning, handritsgerð eða annað sem gefur höfundarétt á fræðslu- og heimildarmyndum sem hafa verið sýndar í sjónvarpi eða gefnar út á myndriti eða til að greiða slíkan kostnað vegna væntanlegra mynda.
  3. Umsækjandi skal gera grein fyrir eftirfarandi:
    1. Til hvaða starfa er sótt um styrk og hvaða upphæð. (Hámarksupphæð einstakra styrkja er 900.000 kr. ).
    2. Hvort umsækjandi hafi aðra styrki eða fái laun fyrir umrætt verk eða hafi sótt um aðra styrki.
    3. Hvaða gildi hann telji að gerð myndarinnar hafi.
    4. Hvaða líkur eru á að myndin verði sýnd í sjónvarpi.
    5. Sé sótt um styrk vegna verks, sem er lokið, skal gera grein fyrir því hvort laun eða höfundarþóknun hafi verið greidd fyrir undirbúning og samningu handrits og hvort verkið hafi verið sýnt í sjónvarpi.
  4. Þeir höfundar skulu að öðru jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á sæmilegri greiðslu fyrir verk sitt..