Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2012

""

Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Höfundar tíu framúrskarandi rita eru tilnefnd árlega til Viðurkenningar Hagþenkis. Í byrjun mars verður tilkynnt hver hlýtur Viðurkenningu Hagþenkis 2012 við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. Viðurkenning Hagþenkis telst til virtustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönnum og höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning getur hlotnast. Verðlaunaupphæðin er kr. 1.000.000, sama upphæð og Félag íslenskra bókaútgefenda veitir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í hvorum flokki fyrir sig.

Viðurkenningaráðið hefur fundað síðan um miðjan október og kynnt sér útgáfu ársins 2012. Það er skipað fimm félagsmönnum Hagþenkis af ólíkum fræðasviðum. Það eru: Ólafur K. Nielsen náttúrufræðingur og formaður ráðsins, Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur, Fanney Þórsdóttir lektor í sálfræðideild HÍ, Haraldur Ólafsson mannfræðingur. Verkefnastjóri er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.

Eftirfarandi höfundar og bækur eru tilnefndar til Viðurkenningar Hagþenkis 2012:

 

• Árni Kristjánsson
Innra augað. Sálfræði hugar, heila og skynjunar. Háskólaútgáfan.
Vandað fræðirit um hlutverk heilastarfssemi í sjónskynjun sem nýtist jafnt nemendum sem almennum lesendum.

• Ásta Bergljót Stefánsdóttir og Guðrún Pétursdóttir
Andlitsmeðferð og efnafræði snyrtivara. Iðnú bókaútgáfa.
Tímabært námsefni þar sem fjallað er um eitt meginsvið snyrtifræðinnar á skýran hátt.

Dr. Gunni
Stuð vors lands. Saga dægurtónlistar á Íslandi. Sögur útgáfa.
Verkið er merkilegt framlag í máli og myndum um þátt dægurtónlistar í menningarlífi Íslendinga.

Gunnar Þór Bjarnason
Upp með fánann. Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Mál og menning.
Aðgengileg umfjöllun um pólitískt umrót ársins 1908 og ólík sjónarmið um tengsl Íslands og Danmerkur.

• Gunnar F. Guðmundsson
Pater Jón Sveinsson. Nonni. Bókaútgáfan Opna.
Glæsileg og vönduð ævisaga sem varpar nýju ljósi á örlög unglings sem var sendur út í heim til að nema guðfræði og varð víðlesnasti rithöfundur Íslendinga fyrr og síðar.

Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson
Eldað og bakað í ofninum heima. Góður matur – gott líf. Vaka-Helgafell
Einstaklega falleg og vel unnin bók um mat og matargerð, leiðarvísir að betra lífi.

• Jón Ólafsson
Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu. JPV útgáfa.
Áhrifamikil og gagnrýnin greining á kommúnismanum og Gúlagi Sovétríkjanna sem afhjúpar varnarleysi hins almenna borgara.

Sigrún Helgadóttir, Freydís Kristjánsdóttir og Guðmundur Ó. Ingvarsson
Víkingaöld. Árin 800-1050. Námsgagnastofnun.
Auðlesinn texti og lýsandi myndefni fléttast vel saman og er góð kynning á margþættu samfélagi víkingaaldarinnar.

 

Sigurður Reynir Gíslason
Kolefnishringrásin. Hið íslenska bókmenntafélag.
Eitt mikilvægasta umhverfisvandamál samtímans, hlýnun jarðar af mannavöldum, krufið til mergjar.

Steinunn Kristjánsdóttir
Sagan af klaustrinu á Skriðu. Sögufélag.
Í verkinu er rakin aðdragandi og framvinda merkilegs forleifauppgraftar og fléttað inn sögulegum fróðleik og tilraunum til túlkunar svo úr verður spennandi saga studd góðum ljósmyndum.