Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2009 og viðurkenningarráð


Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekið upp sú nýbreytni að auk Viðurkenningarinnar sjálfrar kynnir Viðurkenningarráðið lista tíu framúrskarandi fræðirita og námsgagna sem koma til greina við veitingu Viðurkenningarinnar. Viðurkenningarráð Hagþenkis ákveður tilnefningar og velur þann sem hlýtur viðurkenninguna. Ráðið er skipað fimm félagsmönnum Hagþenkis af ólíkum fræðasviðum og hafa þeir fundað reglulega síðan  um miðjan október. Viðurkenning Hagþenkis telst til virtustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönnum og höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning getur hlotnast. Veiting hennar hefur oft vakið athygli en sjaldan deilur. Öll fræðirit sem koma út á Íslandi koma til greina við veitingu viðurkenningarinnar óháð útgefanda eða tilnefningum. Verðlaunaupphæðin er kr. 750.000 sem er sama upphæð og Félag íslenskra bókaútgefenda veitir til íslensku bókmenntaverðlaunanna í hvorum flokki fyrir sig.         Um miðjan mars verður tilkynnt hvaða höfundur hlýtur viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.

 Í viðurkenningarráði eru: Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur og formaður ráðsins, Ingólfur V. Gíslason félagsfræðingur, Jónína Vala Kristinsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur, Kristín Unnsteinsdóttir uppeldis- og kennslufræðingur og Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og ljósmyndari. Verkefnastjóri ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir.