Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkir fyrir útgáfuárið 2022

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar miðvikudaginn 8. febrúar í Borgarbókasafni Reykjavíkur í Grófinni, af formanni Hagþenkis Gunnari Þór Bjarnasyni. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn um miðjan mars og felst í sérstöku viðurkenningarskjali og 1.250.000 kr. Viðurkenningarráð Hagþenkis er skipað fimm félagmönnum til tveggja ára i senn og í því eru: Ársæll Már Arnarsson, Halldóra Kristinsdóttir, Sigurður Sveinn Snorrason, Súsanna Margrét Gestsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir. Verkefnastjóri ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.

Bókakynning, ritin verða kynnt af höfundum laugardaginn 25. febrúar kl. 13-15. í Borgarbókasafninu í Grófinni

Eftirfarandir höfundar og rit eru tilnefnd:

Anna María Bogadóttir. Jarðsetning. Angústúra.
Persónulegt og vekjandi rit um manngerð rými sem hvetur til yfirvegunar um uppbyggingu og niðurbrot.

Ásdís Ólafsdóttir og Ólafur Kvaran. Abstrakt geómetría á Íslandi 1950–1960. Veröld.
Vandað og fallegt rit um byltingaráratug í íslenskri myndlist. Ítarleg umfjöllun um tímabilið með myndum af einstökum verkum listamanna.

Ástríður Stefánsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir og Kristín Björnsdóttir (ritstj.). Aðstæðubundið sjálfræði. Líf og aðstæður fólks með þroskahömlun. Háskólaútgáfan.
Hagnýtt fræðirit um þann einfalda en oft hunsaða sannleik að allir þjóðfélagsþegnar eigi að njóta grundvallarmannréttinda. Tímamótaverk.

Daníel Bergmann. Fálkinn. Anda.
Falleg og vönduð bók sem gefur góða innsýn í lifnaðarhætti fálkans og náið samband hans við íslensku rjúpuna, prýdd einstæðum ljósmyndum.

Helgi Þorláksson. Á sögustöðum. Bessastaðir, Skálholt, Oddi, Reykholt, Hólar, Þingvellir. Vaka-Helgafell.
Mikilvæg bók sem teflir niðurstöðum nýlegra rannsókna fram gegn hefðbundinni sýn á sögustaði.

Hjalti Pálsson. Byggðasaga Skagafjarðar. I.¬–X. bindi. Sögufélag Skagfirðinga.
Yfirgripsmikið fjölbindaverk, skrifað af þekkingu og stutt margvíslegum heimildum ásamt fjölda ljósmynda.

Kristín Svava Tómasdóttir. Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Sögufélag.
Saga Farsóttarhússins myndar ramma utan um óvæntar frásagnir og sjónarhorn sem skerpt er á með vönduðu myndefni.

Ragnar Stefánsson. Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta. Skrudda.
Vandað fræðirit um jarðhræringar á Íslandi stutt viðamiklum mæligögnum og frábærum skýringarmyndum og kortum.

Stefán Ólafsson. Baráttan um bjargirnar. Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks samfélags. Háskólaútgáfan.
Víðtæk og vel skrifuð þjóðfélagsfræðileg greining á þróun lífskjara og samfélagsgerðar á Íslandi.

Þorsteinn Gunnarsson. Nesstofa við Seltjörn. Saga hússins, endurreisn og byggingarlist. Þjóðminjasafn Íslands.
Ítarlegt yfirlitsrit þar sem lesendur fá glögga innsýn í aldarfar og atburði í kaupbæti með sögu Nesstofu fyrr og nú.