Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna og verða erðlaunin v afhent 24. febrúar á Góugleðinni, árlegri bókmenntahátíð kvenna. Verðlaun eru veitt í þremur flokkum; fyrir skáldverk, fræðirit, barna- og unglingabækur. Eftirfarandi höfundar og bækur hlutu tilnefningu að þessu sinni:
Fræðibækur:
Við góða heilsu? Konur og nútímaheilbrigði í nútímasamfélagi. Helga Gottfreðsdóttir og Herdís Sveinsdóttir ritstýra. Útg. Háskólaútgáfan
Úr umsögn dómnefndar: Hér er fjallað á hispurslausan en jafnframt nærfærinn hátt um persónuleg og oft viðkvæm mál tengd heilsu kvenna … Höfundar eru viðurkenndar fræðakonur á sínu sviði, textinn er lipur og skýr og til þess fallinn að höfða til breiðs hóps lesenda með áhuga á heilsu kvenna.
Steinunn Kristjánsdóttir. Sagan af Klaustrinu á Skriðu. Útg. Sögufélagið.
Úr umsögn dómnefndar: Í bókinni er sagt uppgreftri klaustursins á Skriðu í Fljótsdal … Steinunn tekur lesandann með sér í ferðalag í gegnum rannsóknirnar og spinnur úr því spennandi sögu með óvæntum uppgötvunum.
Guðrún Sveinbjarnardóttir. Reykholt: Archaeological Investigations at a high status farm in Western Iceland. Útg. Þjóðminjasafn Íslands.
Úr umsögn dómnefndar: Bókin er fræðirit þar sem dregnar eru saman yfirgripsmiklar fornleifarannsóknir á Reykholti í Borgarfirði, höfðingjasetri um margra alda skeið … Meginstyrkur bókarinnar liggur í ítarlegum lýsingum á hinum víðfeðmu og margþættu rannsóknum sem Reykholtsverkefnið náði yfir.
Fagurbókmenntir
Kristín Eiríksdóttir:Hvítfeld – fjölskyldusaga.Útg. JPV.
Úr umsögn dómnefndar: Hvítfeld – fjölskyldusaga segir frá Jennu Hvítfeld, ungri og dularfullri konu sem flytur heim frá Bandaríkjunum eftir lát yngri systur sinnar. Fljótt kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist og Jenna og fjölskylda hennar búa öll yfir leyndarmálum sem þau fela á bak við lygar og grímur … Eftirminnileg fyrsta skáldsaga höfundar sem vefur flókna örlagafléttu og afhjúpar að lokum skelfileg fjölskylduleyndarmál.
Eyrún Ingadóttir: Ljósmóðirin. Útg. Veröld.
Úr umsögn dómnefndar: Ljósmóðirin er söguleg skáldsaga sem segir sögu Þórdísar Símonardóttur, ljósmóður á Eyrarbakka um aldamótin 1900. Sagan er vel samin og skemmtileg og segir frá konu sem reis upp gegn aðstæðum í samfélaginu og barðist fyrir eigin réttindum og réttindum annarra … Persónusköpun er lífleg og sannfærandi, sagan er efnismikil og frásögn höfundar myndræn og lifandi
Auður Jónsdóttir: Ósjálfrátt. Útg. Mál og menning
Úr umsögn dómnefndar: Ósjálfrátt er skáldsaga þar sem veruleiki og skáldskapur haldast í hendur. Sagan segir frá Eyju sem gerir upp við fjölskyldu sína og fortíð og lærir að vera skáld. Þroskasaga hennar er áhugaverð og óvenjuleg en hana skreyta og undirstrika margar litríkar persónur … Stíllinn er áreynslulaus og léttur en með þungri undiröldu, fullur af lágstemmdri kímni svo úr verður einskonar gleðilegur harmleikur.
Barna- og unglingabækur
Anna Heiða Pálsdóttir: Mitt eigið Harmagedón. Útg. Salka
Úr umsögn dómnefndar: Mitt eigið Harmagedón er þroskasaga fimmtán ára stúlku sem tekst á við efasemdir um þá heimsmynd sem haldið hefur verið að henni frá bernsku. Frásögnin á sér stað á nokkrum sumarvikum og segir frá Dagbjörtu sem er uppalin í samfélagi Votta Jehóva á Íslandi … Bók sem allir unglingar ættu að geta fundið samhljóm í varðandi það að taka ákvarðanir, standa með sjálfum sér og bera ábyrgð á eigin lífi.
Kristín Helga Gunnarsdóttir: Grímsævintýri. Útg. Mál og menning
Úr umsögn dómnefndar: Lesendur kynnast veröld Gríms Fífils sem snýst um lykt, mat og samband hans við mannfólkið, sem elskar hann ýmist eða umber. Það er frásagnarmáti bókarinnar sem gerir hana eftirminnilega og sérstaklega skemmtilega … Grímsævintýri er dýrasaga þar sem lesendurnir fylgjast með lífi hunds frá vöggu til grafar út frá sjónarhóli hamingjudýrsins og fuglaveiðihundsins Gríms Fífils.
Þórdís Gísladóttir: Randalín og Mundi. Útg. Bjartur
Úr umsögn dómnefndar: Reykvískt sumar, uppátækjasamir krakkar, litskrúðugt mann- og dýralíf og ævintýri hversdagslífsins eru m.a. viðfangsefni Þórdísar Gísladóttur í bókinni um fjörugu vinina Randalín og Munda. Þetta er bráðskemmtileg og lipurlega skrifuð saga með spaugilegum myndum, skemmtilegum persónum og aðstæðum sem vekja kátínu og gleði.