Þrjú þingmál bíða samþykktar alþingis

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, hefur átt samráð við ráðuneyti og skrifað nokkrar umsagnir um þrjú mikilvæg þingmál, tvö frumvörp og þingsályktun, sem varða hagsmuni félagsmanna. Þessi mál bíða samþykktar þar sem upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu slitnaði. Þingmálin þrjú eru:

     

      • Frumvarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.

      • Tillaga til þingsályktunar um bókmenntastefnu fyrir árin 2024–2030, lögð fram af menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

      • Frumvarp til laga um námsgögn, lagt fram af mennta- og barnamálaráðuneytinu.

    Hér að neðan má finna nánari upplýsingar um hvert þessara mála og aðkomu Hagþenkis að þeim.

    1. Frumvarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköðunarráðuneytis til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun, lagt fram í október 2024

    Krækja á frumvarpið í samráðsgátt: https://island.is/samradsgatt/mal/3858

    Umsögn Hagþenkis: https://samradapi.island.is/api/Documents/ab287290-939e-ef11-9bc7-005056bcce7e

    Eins og lesa má í umsögninni leggst Hagþenkir alfarið gegn því að Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna verði sameinaður öðrum sjóðum. Vonandi mun ný ríkisstjórn vinda ofan af þeim áætlunum.

    Allar umsagnir: https://island.is/samradsgatt/mal/3858

    2.  Ný bókmenntastefna og aðgerðaráætlun

    Drög að nýrri bókmenntastefnu voru lögð fram af menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Í ferlinu sendi Hagþenkir inn tvær umsagnir og rétt áður en ríkisstjórnarflokkarnir slitu samstarfinu var kallað eftir sérstakri umsögn um aðgerðaáætlun bókmenntastefnunnar. Ný bókmenntastefna byggir á bókmenningarstefnu sem Hagþenkir átti einnig þátt í að móta.

    Tillaga til þingsályktunar um bókmenntastefnu fyrir árin 2024–2030 var lögð fram af menningar- og viðskiptaráðuneytinu og kynnt til opins samráðs í mars 2024.

    Krækja á frumvarpið: https://samradapi.island.is/api/Documents/af88c1f2-41dd-ee11-9bc1-005056bcce7e

    Umsagnir við þingsályktunartillöguna eru hér, meðal annars frá Hagþenki: https://island.is/samradsgatt/mal/3701

    Í fyrri umsögn Hagþenkis og á undirbúningsfundum í menningar- og viðskiptaráðuneytinu lagði Hagþenkir ríka áherslu á að horft yrði til norsku bóklaganna sem tóku gildi 1. janúar 2024 og þau höfð til fyrirmyndar. Sjá:

       

      Umsögn Hagþenkis um boðaða aðgerðaáætlun bókmenntastefnunnar:

      https://hagthenkir.is/thridja-umsogn-hagthenkis-um-bokmenntastefnu-2025-2030-og-bodada-adgerdaraaetlun/

      3. Frumvarp til laga um námsgögn

      Ný heildarlög um námsgögn, sem áttu að koma í stað gildandi laga um námsgögn, nr. 71/2007, voru lögð fram skömmu áður en að upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu slitnaði.

      Hagþenkir sendi tvær umsagnir í samráðsgáttina og átti fulltrúa í starfshópi um námsgögn á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins. Hópurinn starfaði einkum í upphafi árs 2024.

      Krækja á drög að frumvarpi til laga í samráðsgáttinni frá mars 2024. Þarna má einnig lesa umsagnir:  https://island.is/samradsgatt/mal/3713

      Umsögn Hagþenkis: https://samradapi.island.is/api/Documents/893dfb06-35e8-ee11-9bc1-005056bcce7e

      Í september var frumvarpið svo lagt fyrir, sbr. https://www.althingi.is/altext/155/s/0223.html,

      og þá sendi Hagþenkir aftur inn umsögn: https://www.althingi.is/altext/erindi/155/155-96.pdf

      Aðrar umsagnir: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalin/erindi/155/222/?ltg=155&mnr=22https://hagthenkir.is/thridja-umsogn-hagthenkis-um-bokmenntastefnu-2025-2030-og-bodada-adgerdaraaetlun/