Úthlutun vegna afnota á bókasöfnum

Risthöfundasamband Íslands sér um að taka á móti nýskráninum vegna greiðslna vegna  útlána á bókasöfnum. Umsóknarfrestur er til 31. janúar

Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008. Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu, http://rsi.is/bokasafnagreidslur/