Úthlutun vegna afnota á bókasöfnum – umsóknarfrestur til 17. febrúar

Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 og reglur nr. 323/2008. Athygli er vakin á að formálar sem nema að lágmarki 36 bls. og safnrit þar sem hlutur hvers höfundar nemur að lágmarki 36 bls. svo og hljóðrit og stafrænar útgáfur bóka sem samsvara að lágmarki 36 bls. í prentuðu formi veita rétt til greiðslu samkvæmt sérstakri umsókn.

 

Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá Rithöfundasamband Íslands, Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík, sími: 568 3190, rsi@rsi.is eða á heimasíðu, www.rsi.is/greidslur_vegna_bokasafna/

Umsóknarfrestur er  til 17. febrúar.

Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur. Ný verk eru sjálfkrafa færð á skrá höfundar. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands. Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík, sími 568 3190,netfang rsi@rsi.is