útgáfu- og þýðingastyrkir Bókmenntasjóðs

Bókmenntasjóður auglýsir hér með eftir umsóknum um útgáfu- og þýðingastyrki en næsti umsóknarfrestur rennur út 15. mars 2008. Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu og styrkir hann meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku. Þá styrkir Bókmenntasjóður þýðingu íslenskra bókmennta á erlend tungumál og stuðlar að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis.
Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan. 

 

Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á heimasíðu Bókmenntasjóð:  http://www.bok.is/ en einnig á skrifstofu sjóðsins að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
 Framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs er Njörður Sigurjónsson og er hægt að hafa samband við hann í gegnum tölvupóst, bok@bok.is, síma 552 8500, eða gsm 820 1919. Skrifstofa Bókmenntasjóðs er yfirleitt opin á milli níu og fimm en öruggast er að panta viðtalstíma ef fólk á erindi.