Styrkir Hagþenkis – umsóknarfrestur til 3. september kl.15

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um starfsstyrki til ritstarfa og handritsgerðar fræðslu- og heimildamynda, óháð félagsaðild. Ferða- og menntastyrkir eru fyrir félagsmenn Hagþenkis en ferða – og menntastyrkir fyrir handritshöfunda eru veittir óháð félagsaðild. Einungis er heimilt að sækja um vegna ferða sem farnar hafa verið. Umsóknarfrestur er til 3. september kl. 15.

Starfsstyrkir til ritstarfa

Til úthlutunar eru 27.000.000.-kr.

Starfsstyrkir handritsgerðar fræðslu- og heimildarmynda

Til úthlutunar eru 1.500.000.-kr.

Ferða- og menntunarstyrkir – félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.-kr.

Ferða- og menntastyrkir fyrir handritshöfunda – óháð félagsaðild

Til úthlutunar eru allt að 300.000.-kr.

Umsækjendur sækja um á vef Hagþenkis og nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Hafnarstræti 5/ 101 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is