Starfstyrkir Hagþenkis 2015

""Hagþenkir auglýsti í apríl eftir umsóknum um starfsstyrki og bárust 86 umsóknir. Til ráðstöfunar voru 13 milljónir til styrkja til ritstarfa og 200.000 kr. til handritsgerðar. Úthlutunarnefnd Hagþenkis 2015 ákvarðaði að 29 höfundar hlytu starfsstyrk til ritstarfa til 27 verkefna. Tólf fá hæsta styrk, kr. 600.000, þrettán 400.000 kr. og tveir höfundar 300.000 kr. Einn höfundur hlaut handritsstyrk kr. 200.000 en sex umsóknir bárust. Úthlutunarnefnd Hagþenkis er sem fyrr skipuð þremur félagsmönnum til tveggja ára í senn. Úthlutunarnefnd árið 2015 skipuðu Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur, Kolbrún S. Hjaltadóttir kennsluráðgjafi og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir kynjafræðingur. 

Eftirfarandi höfundar hlutu styrk: 

 

Arnar Eggert Thoroddsen.
Icelandic Pop: Its place and peculiarities. 
Kr. 600.000.

Axel Kristinsson.
Hnignun, hvaða hnignun? 
Kr. 600.000.

Gylfi Ólafsson.
Hagnýt heilsuhagfræði. 
Kr. 600.000. 

Halldóra Arnardóttir. 
Listir og menning sem hluti af meðferð við Alzheimer: íslensk söfn. 
Kr. 600.000.

Hörður Kristinsson. 
Fléttuhandbókin. 
Kr.600.000.

Jón K. Þorvarðarson. 
Kennslubókaröð í stærðfræði. 
Kr. 600.000.

Kristín Svava Tómasdóttir. 
Stund klámsins. 
Kr. 600.000.

Ragnheiður Ólafsdóttir. 
Áhrif Kvæðamannafélagsins Iðunnar á rímnahefðina. 
Kr. 600.000.

Ragnhildur Sigurðardóttir. 
Sjálfbærni landnýtingar í Mývatnssveit 1700-1950. 
Kr. 600.000.

Rannveig Þorkelsdóttir og Ása Helga Ragnardóttir. 
Læsi, lestur og listir; að kenna málfræði með aðferðum leiklistar. 
Kr. 600.000.

Sólveig Einarsdóttir og Elinborg Ragnarsdóttir.
Skáld skrifa þér – Brot úr bókmenntasögu með skáldlegu ívafi – 1920 til nútímans. 
Kr. 600.000.

Vilhelm Vilhelmsson. 
Sáttabók Miðfjarðarsáttaumdæmi. 
Kr. 600.000.

Árni Daníel Júlíusson. 
Sustainability or catastrophe? Society and economy in Hörgárdal in the 13th-14th century. 
Kr. 400.000.

Björg Árnadóttir. 
Lake Mývatn – People and places. 
Kr. 400.000.

Björg Hjartardóttir. 
Lesið í Freyju. 
Kr.400.000.

Guðmundur Sæmundsson. 
Íþróttir á Íslandi, menning og siðferði. 
Kr. 400.000. 

Haraldur Sigurðsson. 
Bæjarskipulag og mótun umhverfis á Íslandi á 20. öld. 
Kr. 400.000.

Jón Árni Friðjónsson. 
Sögukennslubækur og tíðarandi. 
Kr. 400.000. 

Ragnhildur Bjarnadóttir. 
Starfstengd leiðsögn. 
Kr. 400.000.

Rósa Rut Þórisdóttir. 
Hvítabjarnkomur til Íslands fyrr og síðar. 
Kr. 400.000.

Sigurrós Þorgrímsdóttir. 
Vakið. 
Kr. 400.000

Silja Bára Ómarsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir. 
Rof: Frásagnir kvenna af fóstureyðingum. 
Kr. 400.000.

Sverrir Tómasson. 
Pipraðir páfuglar. 
Kr. 400.000.

Una Margrét Jónsdóttir. 
Gullöld revíunnar. 
Kr. 400.000.

Þorleifur Friðriksson. 
Evrópskar hulduþjóðir. 
Kr. 400.000.

Bjarki Karlsson. 
Bragsaga. 
Kr. 300.000.

Jóna Valborg Árnadóttir. 
Glatað fé eða fundið? Miðaldra og eldra fólk í starfi. 
Kr. 300.000.

Úthlutun til starfsstyrks til fræðslu- og heimildamyndar

Ásdís Thoroddsen. 
Þjóðbúningurinn. 
Kr. 200.000.