Starfsstyrkir Hagþenkis og handritsstyrkir 2024

Hagþenkir auglýsti eftir umsóknum um starfsstyrki til ristarfa og handritsstyrki fræðslu- og heimildamynda.  Til úthlutunar voru 20.000.000 kr. til ritstarfa og 1.500.000 kr. til handritsstyrkja. Gunnar Þór Bjarnason formaður kynnti styrkina í Borgarbókasafninu í Grófinni 9. október að viðstöddum styrkþegum og úthlutunarráðunum, stjórn Hagþenkis og framkvæmdastýru.

Umsóknir um starfsstyrki til ritstarfa voru 69 og þar af hlutu 19 verkefni styrk. Tólf hlutu hæsta styrk kr. 1.200.000, tvö 1.000.000, þrjú 800.000 og tvö 700.000 kr. Úthlutunarráð starfsstyrkja skipuðu:  Karl Gunnarsson, Súsanna Margrét Gestsdóttir og Úlfhildur Dagsdóttir. Átta umsóknir bárust um handritsstyrki og hlutu 6 verkefni styrk. Tvö 400.000 kr, þrjú 200.000 kr. og eitt 200.000 kr. Úthlutunarráð handritstyrkja skipuðu: Ísold Uggadóttir, Sigurður Pétursson og Þorvarður Árnason.

Starfsstyrkir til ritstarfa

Arnþór Gunnarsson. Ísland – ferðamannaland 1858–1939. Erlendir ferðamenn og ferðaþjónusta í mótun. 1.200.000 kr.

Berglind Erna Tryggvadóttir. Íslenskan, allra mál. 1.200.000 kr.

Björk Bjarnadóttir. Litla þjóðfræðibóka serían: Inngangur að draugafræðum. 1.200.000 kr.

Davíð Hörgdal Stefánsson. Skapandi mengi Jóhanns Jóhannssonar. 1.200.000 kr.

Elfar Logi Hannesson. Leiklist á Flateyri. 800.000 kr.

Hrafnhildur Ragnarsdóttir. Orðaspjall – að efla orðforða og hlustunarskilning barna. 1.200.000 kr.

Jón Torfason, Bragi Halldórsson, Elín Gunnlaugsdóttir og Guðún Laufey Guðmundsdóttir. Útgáfa á Grallaranum frá 1594 sem verður III. bindi Sálmabóka sextándu aldar. 1.200.000 kr.

Katrín Ósk Garðarsdóttir. Fjármál í daglegu lífi. 800.000 kr.

Kristján Eiríksson. Drangey. 1.000.000 kr.

Margrét Gunnarsdóttir. Móðuharðindin í mannlegu ljósi. 800.000  kr.

Nanna Kristin Christiansen. Leiðsagnarnám, skref fyrir skref. 1.200.000 kr.

Ólafur Engilbertsson. Horfin býli og huldar vættir í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu. 600.000 kr.

Pamela De Sensi Kristbjargardóttir. Í kringum Ísland með FjóluFlautu. 1.200.000 kr.

Sigurþór Sigurðsson. Saga bókbands á Íslandi. 600.000 kr.

Trausti Ólafsson. Aðferðir og hugmyndir Moreno í leikrænni geðmeðferð. 1.000.000  kr.

Valur Gunnarsson. Upprunasögur. 1.200.000 kr.

Viðar Hreinsson. Eilífðin sem hvarf: Auðmagn, náttúra og vistkerfi. 1.200.000 kr.

Þór Martinsson. Fullveldi þjóðarinnar. 1.200.000 kr.

Þórunn Rakel Gylfadóttir. Orðaforði á grunni skáldskapara. 1.200.000 kr.

Handritsstyrkir til fræðslu- og heimildamynda

Björn Brynjúlfur Björnsson. Flóttinn frá Kabúl. 200.000 kr.

Davíð Hörgdal Stefánsson. A Deal With Chaos. 200.000 kr.

Elin Hirst. Íslendingasögur í nútíma ljósi. 200.000 kr.

Halldóra Arnardóttir. Afmælishátíð Safnasafnsins við Svalbarðsströnd. 100.000 kr.

Haukur Margeir Hrafnsson. Lýrikk. 400.000 kr.

Stefán Jón Hafstein. Heimurinn eins og hann er – hvað næst? 400.000 kr.