Starfsstyrkir Hagþenkis til ritstarfa 2020

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsti í apríl eftir umsóknum um starfsstyrki til ritstarfa. Til úthlutunar starfsstyrkja voru 16 milljónir. Alls bárust 71 umsóknir um starfsstyrk og af þeim hljóta 27 verkefni styrk.
Átta hlutu hæsta styrk kr. 900.000, einn 750.000 kr. og tveir 700.000 kr. Í úthlutunarráðinu fyrir starfsstyrki  voru eftirfarandi félagsmenn; Auður Pálsdóttir, Ingólfur V. Gíslason og Kristín Jónsdóttir. Ljósmyndina tók Styrmir Kári.

Eftirfarandir hlutu starfsstyrk:

Arndís Þórarinsdóttir.  Á flækingi um fortíðina: Fjölskyldubók um handritaarfinn. Kr. 900.000.
Auður Aðalsteinsdóttir.  Náttúra, hamfarir og tráma í íslenskum samtímabókmenntum. Kr. 300.000.
Ágústa H. Lyons Flosadóttir. Ensk-íslensk lögfræðiorðabók. Kr. 500.000.
Árni Daníel Júlíusson. Agricultural growth in a cold climate. The Case of Iceland. Kr. 200.000.
Árni Heimir Ingólfsson. Jórunn Viðar – Brautryðjandi í íslenskri tónlistarsögu (ævisaga). Kr. 600.000 kr.
Bjarni Björnsson. KLAKI – gagnagrunnur um grunnorðaforða íslensku og handbók um beygingakerfi. Kr. 600.000.
Elín Bára Magnúsdóttir. Spurningin um höfund Grettis sögu. Kr. 900.000.
Elín Ósk Hreiðarsdóttir. Hernámið með augum fornleifafræðinnar. Kr. 250.000.
Erla Dóris Halldórsdóttir. Saga holdsveiki í Noregi og á Íslandi. Kr. 500.000.
Gísli Sverrir Árnason. Eymundur og Halldóra í Dilksnesi. Kr. 700.000.
Guðný Hallgrímsdóttir. Independent Women in 18th-Century Iceland. Kr. 500.000.
Gunnar Þorri Pétursson. Bakhtínskí búmm: Um ris og fall Míkhaíls Bakhtíns í fræðilegri umræðu á Íslandi. Kr. 900.000.
Gylfi Gunnlaugsson. Glímt við arfinn. Kr. 400.000.
Halldór Guðmundsson. Sagnalandið (vinnutitill). Kr. 300.000.
Halldóra Arnardóttir. Skarphéðinn Jóhannsson, þroskasaga arkitekts og þjóðar 1934-1970. Kr. 900.000.
Haraldur Sigurðsson. Gerð bæjarskipulags á Íslandi  á 20. öldinni og fræðin um hið byggða umhverfi. Kr. 900.000.
Hjörleifur Hjartarson. Hross – Bók fyrir almenning um íslenska hestinn. Kr. 500.000 .
Inga Sigríður Ragnarsdóttir. Saga leirlistar á Íslandi 1930-1970, Íslenski leirinn. Kr. 400.000.
Karítas Hrundar Pálsdóttir. Verkefnabók með örsagnasafninu Árstíðir. Kr. 900.000.
Kristján Guðmundsson. Siðferði og Siðblinda. Kr. 450.000.
Paolo Turchi. Grísk-íslensk orðabók. Kr. 400.000.
Sigríður Matthíasdóttir.”Og hefur Guð blessað okkur ríkulega”. Pálína Waage, athafna- og verslunarkona. Kr. 700.000.
Skafti Ingimarsson. Saga íslenskra kommúnista og sósíalista 1918-1968. Kr. 900.000.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir. Handbók um hugræna atferlismeðferð við ofþyngd. Kr. 300.000.
Sölvi Björn Sigurðsson. MÁ – Brot úr ævi Magnúsar Ásgeirssonar. Kr. 750.000.
Una Margrét Jónsdóttir. Silfuröld revíunnar. Kr. 450.000.
Þorsteinn Vilhjálmsson. Betra fólk: Takmörkun barneigna á Íslandi 1900-1968. Kr. 900.000.