Starfsstyrkir Hagþenkis 2011

    ""

           Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna veitir árlega starfsstyrki til ritstarfa og  til gerðar handrita fræðslu- og heimildamynda. Árið 2011 voru til ráðstöfunar 14 milljónir kr. Alls var sótt um 72 starfsstyrki til ritstarfa og nam heildarupphæðin sem sótt var um rúmum 37 milljónum kr. Úthlutað var styrkjum til 31 verkefnis og hlutu 16 höfundar hæsta styrk kr. 600.000. Þrjár umsóknir til handritsgerðar hlutu styrk samtals 650.000 kr. Í úthlutanaráði fyrir árið 2011 voru: Hrefna Róbertsson sagnfræðingur, Snorri Baldursson náttúrufræðingur og Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingur.

Eftirfarandi höfundar hlutu starfsstyrk:

 
Nafn Verkefni Þús.
Starfsstyrkir: 600 þúsund    
Anna Ingólfsdóttir Um makamissi 600
Bjarni Reynarsson  Fræðirit um sögulega þróun og skipulag vestrænna borga 600
Björn Vilhjálmsson  Hugmyndafræði og vinnuaðferðir Hálendishópsins fyrir ungt fólk í vanda  600
Gréta Elín Sörensen  Prjónabók  600
Guðjón Friðriksson  Allt um Reykjavík – alfræði 600
Guðmundur Páll Ólafsson  Um vatn – heimildarit  600
Ingunn Þóra Magnúsdóttir Íslenskir listamenn í eldlínu – Menningarferð um 20. öldina  600
Jóhann Sigurðsson  Hugtakasafn í stærðfræði á kennsluvef  600
Jónas Knútsson   In Catilinam eftir Marcu Tullius Ciero – þýðing  600
Margrét Elísabet Ólafsdóttir Saga íslenskrar vídeólistar 600
Margrét Gunnarsdóttir Ævisaga Ingibjargar Einarsdóttur (1804-1879) 600
Sigurður Gylfi Magnússon  What is Microhistory? Theory and Practice  600
Stefán Pálsson  Um sögu og leturgerð bókstafsins "Ð"  600
Sumarliði R. Ísleifsson  Tvær eyjar á jaðrinum, Ísland og Grænland frá miðöldum til miðjar 19. aldar.  600
Viðar Hreinsson  Ævisaga séra Bjarna Þorsteinssonar  600
Þórunn Sigurðardóttir Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld  600
     
Starfsstyrkir 200-300 þúsund    
Aðalheiður Guðmundsdóttir  Efniviður norrænna hetjusagna  300
Arna Björk Stefánsdóttir  Listaverkabók um Matthea Jónsdóttur myndlistakonu (1935-2009) 300
Ásdís Ósk Jóelsdótttir  Námsefni í saumtækni 300
Birna Lárusdóttir Íslenskir minjastaðir  300
Erla Hulda Halldórsdóttir Sendibréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur á árunum 1824-1832 300
Guja Dögg Hauksdóttir Högna Sigurðardóttir arkitekt og verk hennar 300
Gunnar Örn Hannesson  Bréfabók Eggerts sýslumanns Björnssonar á Skarði (1612-1681) 300
Harpa Björnsdóttir Myndlist Sölva Helgasonar 300
Kristján Guðmundsson  Uppruni kenninga B. F. Skinners um virka hegðun 300
Magnús Einarsson Félagsfræðiveislan: Sjónarhorn félagsfræðinnar fyrir framhaldsskóla 200
Paolo M. Turchi  Grísk-íslensk, íslensk-grísk vasaorðabók 300
Páll Baldvin Baldvinsson  Saga sjálfstæðra leikhópa á Íslandi frá 1922-1972 300
Sigrún Helgadóttir  Þingvellir, þjóðgarður og heimsminjar  300
Sigurþór Sigurðsson  Saga bókbands á Íslandi  300
Trausti Ólafsson  Straumar og stefnur í evrópskri leiklist á tuttugustu öld.  300
  Samtals  14000
     
Fræðslu- og heimildamyndir    
Ásta Kristjánsdóttir/Berghildur Erla  Fæðing stjórnarskrár  250
Ari Trausti Guðmundsson  Um nýsköpun í íslenskum iðnaði – þáttaröð  100
Pétur Gunnarssson  Með útidúrum til átjándu aldar – þáttaröð  300
  Samtals  650