Íslensk ritsnilld! Taktu þátt í valinu

Á bókasýningunni í Frankfurt hefur skapast sú hefð að heiðursgestur sýningarinnar afhendir þeirri þjóð sem tekur við nafnbótinni sérstakt kefli á lokadegi hennar. Á keflið eru ritaðar tilvitnanir í bókmenntir frá viðkomandi löndum. Kínverjar höfðu þarna nokkur sígild kínversk ljóð, og Argentínumenn, sem eru heiðursgestir í ár, vitna í verk eftir skáldið J.L. Borges. Nú  er  auglýst eftir hugmyndum að því hvað Íslendingar ættu að letra á keflið.

 

Hvaða  tilvitnun ætti að nota af þessu tilefni, sem eins konar táknmynd íslenskra bókmennta? Sagenhaftes Island, verkefnið sem stýrir þátttöku Íslands í Bókasýningunni 2011, óskar eftir hugmyndum að því hvað ætti að standa á keflinu. Allt kemur til greina:  Fornbókmenntir eða nútímabókmenntir, ljóð eða laust mál, en lengdin á helst að vera 5-10 línur. Tillögur má senda á netfangið: info@sagenhaftes-island.is. Ef margar skemmtilegar tillögur berast munum við birta þær á vefsíðunni, www.sagenhaftes-island.is. Í  júlí verður svo valin tilvitnunin sem letruð verður á keflið. Við hvetjum alla til að taka þátt í þessari óformlegu samkeppni um  íslenska ritsnilld!

 


 

""