SKELIN lista- og fræðimannadvöl á vegum Þjóðfræðistofu

 

Þjóðfræðistofa býður í vetur upp á lista- og fræðimannadvöl í fallegu,
nýuppgerðu húsi á Hólmavík. Gestir fá að dvelja í húsinu í eina viku á tímabilinu 15. september 2011 – 15. desember 2011. Dvölin er að jafnaði gjaldfrjáls en öllum gestum er skylt að skila af sér framlagi undir lok dvalar í formi sýninga, tónleika, fyrirlestra, námskeiða eða öðru sem um semst við Þjóðfræðistofu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hólmakaffi og styrkt af Strandabyggð. Ferilskrá og umsókn, þar sem tilgreint er að hvaða verkefni er unnið og hvernig framlagi skuli háttað, skal senda á katla@icef.is.
Ef spurningar vakna má einnig hafa samband við Kötlu Kjartansdóttur í síma 8654463.