Þróunarsjóður námsgagna. Umsóknarfrestur til 31. janúar 2017, kl.17:00

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna. Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Forgangsatriði þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2017 eru þrjú:

 
  • Námsgögn fyrir innflytjendur vegna tungumálakennslu og tvítyngis
  • Fjármálalæsi þvert á skólastig
  • Námsgögn fyrir starfsnám

Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2017, kl. 17:00. 

Umsókn skal skilað á rafrænu formi í gegnum heimasíðu Rannis.  Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn. https://www.rannis.is/sjodir/rannsoknir/throunarsjodur-namsgagna/