Rétthafagátt handritshöfunda og 3% sjóður. Umsóknarfrestur 10. nóv. kl. 15

Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Innheimtumiðstöð rétthafa – IHM auglýsir Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna rétthafagátt handritshöfunda og eftir umsóknum handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda í sérstakan 3% sjóð. Hvort tveggja óháð félagsaðild. Umsóknar- og skráningarfrestur er til 10. nóvember kl. 15:00.

Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildarmynda fyrir árið 2022

Handritshöfundar að fræðslu- og heimildamyndum, sem sýndar hafa verið í línulegri dagskrá ber að  skrá sig og sýnd verk sín í rétthafagátt á heimasíðu Hagþenkis til að hljóta rétthafagreiðslur. Skráning í rétthafagáttina er varanleg en skrá þarf ný verk innan tilgreinds umsóknarfrests. Rétthöfum ber einnig að tilkynna breytingar á heimilisfangi, netfangi, bankareikningi og tilgreina nákvæma hlutfallsskiptingu í nýjum verkum ef það á við. Greitt skal eftir flutningstíma í mínútum á grundvelli upplýsinga frá viðkomandi ljósvakamiðlum.

Vinsamlegast látið skrifstofu Hagþenkis vita ef verk var sýnt eða endursýnt á N4 árið 2022.

Til úthlutunar eru 4.500.000 kr.

Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildamynda fyrir árið 2021

Þeir handritshöfundar sem sannarlega áttu sýnt eða sýnd verk árið 2021 en fengu ekki rétthafagreiðslu frá Hagþenki, er bent á að hafa samband við skrifstofu Hagþenkis og sækja um í svokallaðan 3 % – sjóð.

Nánari upplýsingar, rétthafagáttin, úthlutunarreglur eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is  Skráning í rétthafagáttina fer í gegnum – Mínar síður, efst til hægri.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7 / 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is