Opið fyrir umsóknir um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki til 1. okt. kl. 15.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki, síðari úthlutun.

 

 

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.

Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum skólaárin 2012-2013. Til úthlutunar eru allt að 5.000.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum

Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjónvarpi árin 2011–2013, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum. Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2014 – fyrir félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem farnar voru á árinu. Umsækjendur skulu senda skrifstofu Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót.  Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.

Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á hér á heimasíðunni. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Hringbraut 121, 4.h. 107 Reykjavík / Sími 551-9599