Nýræktarstyrkir Bókmenntasjóðs

 

 

Bókmenntasjóður minnir á að næsti umsóknarfrestur um Nýræktarstyrki rennur út miðvikudaginn 6. apríl 2011.

Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Eru styrkirnir ætlaðir til að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda, verkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Hér falla undir skáldverk í víðri merkingu þess orðs til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt annað, og leitast er eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum.Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vefsíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Bókmenntasjóðs, Austurstræti 18, 101 Reykjavík. Frekari upplýsingar fást á netfanginu bok@bok.is   og í síma 552 8500.

 Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.

Nánari upplýsingar veitir 

Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Bókmenntasjóður / The Icelandic Literature Fund
Austurstraeti 18, 4. hæð/4th floor | 101 Reykjavík
www.bok.is | bok@bok.is | +354 552 8500