Menningarsjóður Gunnarsstofnunar auglýsir eftir umsóknum í fyrsta sinn

Stjórn Menningarsjóðs Gunnarsstofnunar auglýsir eftir umsóknum um styrki sem á að úthluta á fæðingardegi Gunnar Gunnarssonar skálds, 18. maí nk. Verður það í fyrsta sinn sem veitt verður úr sjóðnum. Til úthlutunar er ein milljón króna sem deila á milli allt að þriggja verkefna. Að þessu sinni leggur sjóðsstjórnin áherslu á verkefni sem tengjast ritverkum og ævi Gunnars Gunnarssonar og önnur verkefni sem samræmast hlutverki Gunnarsstofnunar. Umsóknarfrestur rennur út 10. maí og allar upplýsingar er að finna á heimasíðu Gunnarsstofnunar, http://www.skriduklaustur.is.

 

Menningarsjóður Gunnarsstofnunar var stofnaður árið 2013 af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þriggja manna stjórn stýrir sjóðnum en samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans tvíþættur: annars vegar að renna stoðum undir starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri með árlegum framlögum til hennar; hins vegar að styðja rithöfunda, listamenn, fræðimenn og námsfólk til verka er samræmast hlutverki Gunnarsstofnunar.