Lista­‐ og fræðimannadvöl á Hólmavík

Þjóðfræðistofa býður í vetur upp á lista- og fræðimannadvöl í fallegu nýuppgerðu húsi á Hólmavík. Fræði- og listamenn fá að dvelja í húsinu frá einni viku til eins mánaðar á tímabilinu 1. nóvember – 1 maí 2011. Að jafnaði er ekkert gjald fyrir slíka dvöl en öllum gestum er skylt að skila af sér framlagi undir lok dvalarinnar í formi sýninga, tónleika, fyrirlestra, námskeiða eða öðru slíku. Hægt er að sjá myndir, fá frekari upplýsingar og skila inn umsókn á heimasíðu Þjóðfræðistofu www.icef.is eða á facebook. Ef spurningar vakna má einnig hafa samband við Kristinn Schram sími 8661940 eða Kötlu Kjartansdóttur sími 8654463.