Leiðbeiningar til umsækjanda – vinsamlegast lesið reglurnar

 

Umsækendur, vinsamlegast athugið að þegar sótt er um styrk er stofnuð ný umsókn í gegnum heimasíðu Hagþenkis og á þar til gert eyðublað. Fyllið þarf út alla reiti til að umsókn teljist fullgild og tilvalið að senda með henni sýnishorn af kafla sem fylgiskjal. Þegar allir stjörnumerktir reitir hafa verið fylltir út er hægt að vista umsóknina. Sjá hnappinn vista neðst í umsóknareyðublöðunum sem kemur í staðinn fyrir send. Þegar umsókn er vistuð skráist hún og á umsækjandi að fá sent í tölvupósti sínum KENNIMARK umsóknar sinnar, sem er runa af hástöfum og tölum. Hver og ein umsókn fær sitt sérstaka kennimark. Með því er hægt að opna umsóknina og breyta henni, þar til umsóknarfresti lýkur.
Kennimarkið gildir sem kvittun og staðfesting á að umsókn hafi borist.

 

Til að netpóstur frá Hagþenki lendi síður í ruslboxi umsækjanda er mikilvægt að umsækjendur skrái netfang Hagþenkis, hagthenkir@hagthenkir.is í tölvuna sína og áður en ferlið hefst.

Vinsamlegast skoðið reglur um starfsstyrki og ferða- og menntastyrki áður en sótt er um. Þær eru að finna undir bláa flipanum til vinstri á síðunni sem heitir STYRKIR OG ÞÓKNANIR – UPPLÝSINGAR. Þeir sem hafa hlotið styrk til ritstarfa þurfa að senda inn skilagrein á sérstöku eyðublaði,  helst ári síðar og gera grein fyrir stöðunni . http://https://hagthenkir.is/eydublad-skilagrein-starfsstyrkur

Varðandi fylgiskjöl, athugið að hámarkstærð hvers viðhengis er 30 megabæti og það ætti að duga. Stærri fylgiskjölum, útprentuðum eða útgefnum er hægt að skila til framkvæmdastýru félagsins, Friðbjörgu Ingimarsdóttir, sími 8689725.

Í úthlutunarráðum Hagþenkis, hvoru um sig, sitja þrír félagsmenn til tveggja ára i senn og þau ákvarða starfsstyrki.

Starfsstyrkir verða tilkynntar í maí og stefnt að því að greiða þá út um mánaðamót maí og júní að öllu forfallalausu.
Ferða- og menntastyrkir eru afgreiddir af stjórn Hagþenkis og stefnt að því að greiða þá út í maí.