Gunnarsstofnun auglýsir eftir umsóknum í gestaíbúðina í Gunnarshúsi á  Skriðuklaustri fyrir árið 2013. Að venju njóta þeir forgangs sem eru með  verkefni er snerta Gunnar eða Austurlands en að öðru leyti er íbúðin opin fyrir  alla. Dvölin er endurgjaldslaus en gert ráð fyrir að gestir taki á einhvern hátt  þátt í starfsemi á Skriðuklaustri með fyrirlestri eða öðru slíku.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2012. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er  að finna á www.skriduklaustur.is