2009
Aðalsteinn Ingólfsson
Ásgerður Búadóttir: Veftir
Uppheimar
· Vönduð listaverkabók sem er veglegur minnisvarði um ævistarf frumkvöðuls í veflist á Íslandi.
Árni Heimir Ingólfsson
Jón Leifs – Líf í tónum
FORLAGIÐ/Mál og menning
· Hrífandi frásögn og gagnrýnin umfjöllun um líf og list stórbrotins tónskálds.
Guðrún Ása Grímsdóttir
Ættartölusafnrit Séra Þórðar Jónssonar í Hítardal. I – II
Háskólaútgáfan
· Aðgengileg heimildaútgáfa og mikilvæg grundvallarrannsókn á uppruna, efni og rittengslum ættartölusafnrita 17. aldar.
Guðjón Ármann Eyjólfsson
Vestmanneyjar – Ferðafélag Íslands árbók 2009
Ferðafélag Íslands
· Lipur og lifandi túlkun í máli og myndum á samspili óblíðra náttúruafla særoks og eldvirkni við mannlífið í verstöðinni Vestmannaeyjum.
Gunnar Harðarson
Blindramminn á bak við söguna
Háskólaútgáfan
· Frumleg og skýr greining á erlendum fyrirmyndum ýmissa viðtekinna hugmynda sem kenndar hafa verið við íslenska bókmennta- og hugmyndasögu.
Helgi Björnsson
Jöklar á Íslandi
Bókaútgáfan Opna
· Mögnuð bók um einstæð náttúrufyrirbæri þar sem saman fara vandaður texti og sjaldséð úrval ljós- og skýringamynda.
Pétur Gunnarsson
ÞÞ – Í forheimskunnar landi og ÞÞ í fátæktarlandi
FORLAGIÐ/JPV útgáfa
· Brugðið skærri birtu á líf og lifnað eins helsta rithöfundar Íslendinga með þeirri alvörublöndnu kímni sem hæfir viðfangsefninu.
Sigrún Sigurðardóttir
Afturgöngur og afskipti af sannleikanum
Þjóðminjasafn Íslands
· Nýstárleg túlkun á ljósmyndaarfi 20. aldar og menningarfræðileg greining á tengslum ljósmyndar og veruleika.
Sæunn Kjartansdóttir
Árin sem engin man
FORLAGIÐ/Mál og menning
· Fjallað af þekkingu og næmni um áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna og mikilvægi heilbrigðrar tengslamyndunar fyrir framtíðarvelferð einstaklingsins.
Hugrún Ösp Reynisdóttir
Saga viðskiptaráðuneytisins 1939-1994. Frá höftum til viðskipta
Viðskiptaráðuneytið/Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands/Háskólaútgáfan
· Varpar áhugaverðu ljósi á sögulegar forsendur umtal
2008
Aðalsteinn Ingólfsson
Elías B. Halldórsson. Málverk/Svartlist
Ritstjórn: Sigurlaugur Elíasson, Gyrðir Elíasson og Nökkvi Elíasson
Uppheimar
· Klassísk listaverkabók þar sem fræðileg úttekt á verkum listamannsins ber frásögn af ævi hans uppi.
Guðmundur Eggertsson
Leitin að uppruna lífs. Líf á jörðu, líf í alheimi
Bjartur
· Alþýðlegt fræðirit um leyndarmálið mikla, hvernig kviknaði líf á jörðu.
Guðný Helga Gunnarsdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir
Átta-tíu, námsefnisflokkur í stærðfræði fyrir unglingastig
Námsgagnastofnun
· Framsækið námsefni þar sem stærðfræðin er hagnýtt til túlkunar á umhverfi og samfélagi.
Hjörleifur Stefánsson
Andi Reykjavíkur
JPV útgáfa
· Gagnrýnin umfjöllun um borgarskipulag Reykjavíkur, sett fram af fagmennsku og ást til borgarinnar.
Jón Ma. Ásgeirsson og Þórður Ingi Guðjónsson
Frá Sýrlandi til Íslands. Arfur Tómasar postula
Háskólaútgáfa
· Ánægjulegt dæmi um afrakstur samstarfs tveggja fræðimanna af ólíkum fræðasviðum.
Kristmundur Bjarnason
Amtmaðurinn á einbúasetrinu. Ævisaga Gríms Jónssonar
Iðunn
· Safarík frásögn af Grími amtmanni og umhverfi hans heima og erlendis
Ragnheiður Kristjánsdóttir
Nýtt fólk. Þjóðerni og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901-1944
Háskólaútgáfan
· Frumleg nálgun á tveimur lykilþáttum íslenskrar samfélagsþróunar, þjóðernishugmynda og stéttaátaka
Sigrún Helgadóttir
Friðlýst svæði á Íslandi, Jökulsárgljúfur – Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli.
Opna
· Lykill að stórbrotnu svæði, þar sem afar vel er fléttað saman sögu, náttúrufræði og bókmenntum.
Sigurður Ægisson og Jón Baldur Hlíðberg
Íslenskar kynjaskepnur
JPV útgáfa
· Nýtt sjónarhorn á kynjaskepnur íslenskra þjóðsagna.
Vilhjálmur Árnason
Farsælt líf, réttlátt samfélag – kenningar í siðfræði
Heimskringla. Háskólaforlag Máls og menningar
· Siðfræði og siðfræðileg álitamál verða skýr í vandaðri og ítarlegri umfjöllun.
2007
Aldís Unnur Guðmundsdóttir
Þroskasálfræði. Lengi býr að fyrstu gerð.
Edda útgáfa/Mál og menning
· Yfirgripsmikil, krefjandi en um leið aðgengileg bók sem nýtist jafnt nemendum sem almennum lesendum
Danielle Kvaran
Erró í tímaröð. Líf hans og list
Þýð: Sigurður Pálsson
FORLAGIÐ/Mál og menning
· Myndræn framsetning á æviferli sem veitir innsýn í síkvikan hugarheim listamanns
Hjalti Pálsson, aðalhöfundur og ritstjóri
Byggðasaga Skagafjarðar IV. Akrahreppur
Sögufélag Skagafjarðar
· Nútíð og fortíð, land og saga, alþýðufróðleikur og vönduð sagnfræði fléttast saman í yfirgripsmikilli byggðasögu
Hreinn Ragnarsson, ritstjórn
Silfur hafsins – Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga
Höfundar eru: Benedikt Sigurðsson, Birgir Sigurðsson, Guðni Th. Jóhannesson, Hjörtur Gíslason, Hreinn Ragnarsson, Jakob Jakobsson, Jón Þ. Þór, Steinar J. Lúðvíksson)
Nesútgáfan
· Fjölþættu stórvirki um örlagavald í íslenskri sögu siglt farsællega í höfn
Lára Magnúsardóttir
Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550
Háskólaútgáfan
· Fræðilegt afrek sem endurskoðar með róttækum hætti merkilegan þátt í íslenskri sögu í alþjóðlegu samhengi
Ólafur Páll Jónsson
Náttúra, vald og verðmæti:
Umhverfisrit bókmenntafélagsins
Hið íslenska bókmenntafélag
· Heimspekilegt framlag þar sem grunnur er lagður að nýjum leiðum til umræðu um erfitt og umdeilt málefni
Pétur Hafþór Jónsson
Hljóðspor
Námsgagnastofnun
· Bráðskemmtileg námsgögn um rætur og sögu vestrænnar dægurtónlistar
Sigrún Aðalbjarnardóttir
Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar.
Forlagið/Mál og menning
· Tímabær umfjöllun um forsendur uppeldis og menntunar, byggð á áratuga störfum og rannsóknum
Þorleifur Friðriksson
Við brún nýs dags. Saga Verkamannafélagsins Dagsbrúnar 1906-1930
Háskólaútgáfan
· Þaulunnið og efnisríkt rit um upphaf íslenskrar verkalýðsbaráttu
Þorleifur Hauksson
Sverris saga
Umsjón og ritar formála
Hið íslenska fornritafélag
· Yfirburða þekking á íslenskri stílfræði kristallast í vandaðri útgáfu sérstæðrar fornsögu
Sigrún Aðalbjarnardóttir
Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar.
Forlagið/Mál og menning
· Tímabær umfjöllun um forsendur uppeldis og menntunar, byggð á áratuga störfum og rannsóknum
2006
Andri Snær Magnason: Draumalandið. Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð.
Björn Hróarsson: Íslenskir hellar.
Guðni Th. Jóhannesson: Óvinir ríkisins. Byltingarsinnar, ógnir og innra öryggi í Kalda stríðinu á Íslandi.
Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og Jón Baldur Hlíðberg: Íslenskir fiskar.
Gunnar Karlsson og Sigurður Ragnarsson: Nýir tímar. Saga Íslands og umheimsins frá lokum 18. aldar til árþúsundamóta.
Ragnhildur Richter, Sigríður Stefánsdóttir og Steingrímur Þórðarson: Íslenska I. Kennslubók í íslensku fyrir framhaldsskóla.
Robert Jack: Hversdagsheimspeki. Upphaf og endurvakning.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Ólafía. Saga Ólafíu Jóhannsdóttur.
Þórður Tómasson: Listaætt á Austursveitum.
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir: Upp á Sigurhæðir. Saga Matthíasar Jochumssonar.