Hagþenkir hefur úthlutað 27 milljónum kr. til starfsstyrkja til ritstarfa og 1,5 milljón til handritstyrkja fræðslu og heimildamynda.
Henry Alexander Henrysson formaður kynnti styrki Hagþenkis í Hafnarstræti 5, þann 30. september, að viðstöddum styrkþegum, úthlutunarráðunum tveimur, stjórn Hagþenkis og framkvæmdastýru. Sextíu umsóknir bárust um starfsstyrk til ritstarfa og þar af hlutu 30 styrk. Í úthlutunarráði starfsstyrkja voru: Arnór Gunnar Gunnarsson, Kristján Leósson og Sólrún Harðardóttir. Þá bárust fimm umsóknir um handritsstyrki fræðslu- og heimildamynda og hlutu þrjú verkefni styrk. Í úthlutunarráði voru: Ari Trausti Guðmundsson, Ólafur J. Engilbertsson og Sigrún Alba Sigurðardóttir.
Starfsstyrkir til ritstarfa
AlmaDís Kristinsdóttir. Safnfræðsla: Fagleg nálgun í fræðslumálum safna.1.200.000 kr.
Andri Þorvarðarson. Farið fé – Fall Sparisjóðs Mýrasýslu.1.200.000 kr.
Árni Einarsson. Þúsund ára þjóðminjar. 600.000 kr.
Árni Sigurjónsson. Ævisaga Soffíu og Magnúsar Kjarans. 900.000 kr.
Ásgeir Brynjar Torfason. Ævisaga íslensku krónunnar. 1.200.000 kr.
Birna Lárusdóttir. Landslag í mótun: Örnefni í Surtsey. 900.000 kr.
Brynhildur Þórarinsdóttir. Lestrarsamfélagið: Bókmenntakennsla í breyttum heimi. 1.200.000 kr.
Elín Hirst. Vatnið frá Hinu neðra.1.000.000 kr.
Guðjón Arngrímsson. Vesturfararnir (vinnuheiti). 900.000 kr.
Guðmundur Magnússon. Jóhann Jónsson skáld. Ævi, verk og örlög. 900.000 kr.
Guðrún Kristinsdóttir. Hin spillta/hreina kona og hið pólitíska í framúrstefnuleikritum Halldórs Laxness. 900.000 kr.
Gunnar Hersveinn. Friðarmenning. 800.000 kr.
Halldóra Arnardóttir. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt. Vatn, vindur og jarðvegur verða arkitektónískir þættir.1.200.000 kr.
Haukur Ólafsson. Byssan og ólífan – Aldalöng átök um Ísrael og Palestínu. Mið-Austurlönd í hnotskurn. 800.000 kr.
Hrafnkell Lárusson. Fyrir opnum tjöldum: Alþingiskosningar 1874–1903.1.200.000 kr.
Hörður Lárusson. Fáni Íslands — Tákn lands og þjóðar. 600.000 kr.
Kristborg Þórsdóttir. Saga eyðibyggðanna á Gjögraskaga. 900.000 kr.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Marin Hrafnsdóttir. Ævisaga Guðrúnar frá Lundi. 12.000.000 kr.
Marteinn Sindri Jónsson. Hugleiðingar við Miklubraut. 750.000 kr.
Óskar Örn Arnórsson. Bók um ævi og störf Einars Þorsteins Ásgeirssonar. 800.000 kr.
Pamela De Sensi Kristbjargardóttir. Pikkólófræði: Litli risinn í íslenskri tónlistarsögu. 900.000 kr.
Rannveig Magnúsdóttir. Vatn til framtíðar. 900.000 kr.
Rán Tryggvadóttir. Kafli um takmarkanir á höfundarrétti. 1.200.000 kr.
Sigríður Matthíasdóttir. „Með fyrstu mönnum, og allra fyrsta kona“. Útgerðarkonan Ólöf Bjarnadóttir (1834-1937). 500.000 kr.
Sigrún Alba Sigurðardóttir. Börn, umhyggja og jarðnesk tengsl. 600.000 kr.
Sigrún Klara Hannesdóttir. Konur í sögu Seyðisfjarðar. 900.000 kr.
Úlfhildur Dagsdóttir. Skáldað fræðirit eða fræðirit með skálduðu ívafi – æviskrif. 900.000 kr.
Þórir Óskarsson. Þjóðardýrlingurinn Eggert Ólafsson og kaþólikkinn Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson. 750.000 kr.
Örnólfur Thorsson. Lykilbók – handbók um Íslendingasögur. 1.200.000 kr.
Handritsstyrkir fræðslu og heimildamynda:
Ása Helga Hjörleifsdóttir. Óhemja. 600.000 kr.
Páll Kristinn Pálsson. Lifandi ljóð. 600.000 kr.
Kári Schram. Ný laxveiðiá. 300.000 kr.