Hagþenkir óskar eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntastyrki

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki. Umsóknarfrestur til 18. maí kl. 15.

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.

Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar og stafrænnar fjölföldunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera 2020-2021. Til úthlutunar eru allt að 6.000.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir  – fyrir félagsmenn Hagþenkis, fyrri úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis – fyrri úthlutun. Rétt til að sækja um hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Einungis er heimilt að sækja um vegna ferða sem hafa verið farnar. Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.

Umsækjendur sækja um í gegnum vef Hagþenkis og fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist. Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is en nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu félagsins.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7. 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is