Hagþenkir auglýsir rétthafagátt handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda. Frestur til að skráningar rennur út 7. nóv. kl. 15

Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Innheimtumiðstöð rétthafa – IHM auglýsir Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna eftir umsóknum í rétthafagátt handritshöfunda og eftir umsóknum handritshöfunda fræðslu- og heimildamynda í sérstakan 3%  sjóð. Hvort tveggja er óháð félagsaðild. Umsóknar- og skráningarfrestur er til  7. nóvember kl. 15:00

Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildarmynda sem sýndar voru 2023

Handritshöfundar að fræðslu- og heimildamyndum, sem sýndar hafa verið í línulegri dagskrá ber að  skrá sig og sýnd verk sín í rétthafagátt á heimasíðu Hagþenkis til að hljóta rétthafagreiðslur. Skráning í rétthafagáttina er varanleg, en skrá þarf ný verk innan tilgreinds umsóknarfrests. Rétthöfum ber einnig að tilkynna breytingar á heimilisfangi, netfangi, bankareikningi og tilgreina nákvæma hlutfallsskiptingu í nýjum verkum ef það á við. Greitt skal eftir flutningstíma í mínútum á grundvelli upplýsinga frá viðkomandi ljósvakamiðlum.

3 % – sjóðurinn

Þeir handritshöfundar sem sannarlega áttu sýnt eða sýnd verk árið 2022 en fengu ekki rétthafagreiðslu frá Hagþenki árið 2023, er bent á að hafa samband við skrifstofu Hagþenkis og sækja síðan skriflega um í svokallaðan 3 % – sjóð innan tilskilins umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar, rétthafagáttin, úthlutunarreglur eru að finna á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is  Skráning í rétthafagáttina fer í gegnum – Mitt svæði,  efst til hægri á heimasíðunni. Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7 / 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is