Hagþenkir auglýsir eftir umsóknum um styrki

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um starfsstyrki til ritstarfa og handritsgerðar fræðslu- og heimildamynda, óháð félagsaðild. Ferða- og menntastyrkir eru  fyrir félagsmenn  Hagþenkis en ferða – og menntastyrkir fyrir handritshöfunda eru veittir óháð félagsaðild. Einungis er heimilt að sækja um vegna ferða sem farnar hafa verið.  Umsóknarfrestur er til 25. ágúst kl. 15.

Starfsstyrkir til ritstarfa

Til úthlutunar eru 25.000.000.-kr.

Starfsstyrkir vegna handritsgerðar fræðslu- og heimildarmynda

Til úthlutunar eru 2.000.000.-kr.

Ferða- og menntunarstyrkir – félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.-kr.

Ferða- og menntastyrkir fyrir handritshöfunda – óháð félagsaðild

Til úthlutunar eru allt að 500.000. -kr.

Umsækjendur sækja um á vef Hagþenkis og nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is

Nánari upplýsingar veitir 

Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Hafnarstræti 5/ 101 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is