Hagþenkir auglýsir eftir umsóknum, 17 ágúst – 4 sept. kl. 15

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um starfsstyrki til ritstarfa og handritsgerðar fræðslu- og heimildamynda, óháð félagsaðild. Ferða- og menntastyrkir eru  fyrir félagsmenn  Hagþenkis en ferða – og menntastyrkir fyrir handritshöfunda eru veittir óháð félagsaðild. Einungis er heimilt að sækja um vegna ferða sem farnar hafa verið.  Umsóknarfrestur til 4. september kl. 15.

Starfsstyrkir til ritstarfa

Til úthlutunar eru 20.000.000.-kr.

Starfsstyrkir vegna handritsgerðar fræðslu- og heimildarmynda

Til úthlutunar eru 1.500.000.-kr.

Ferða- og menntunarstyrkir – félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.-kr.

Ferða- og menntastyrkir fyrir handritshöfunda – óháð félagsaðild

Til úthlutunar eru allt að 500.000. -kr.

Umsækjendur sækja um á vef Hagþenkis og nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð eru á heimasíðu félagsins undir flipanum styrkir og þóknanir.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7. 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is