Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum. Umsóknarfrestur er til 6. maí kl. 15.
Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl. – óháð félagsaðild.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar og stafrænnar fjölföldunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera 2024-2025. Til úthlutunar eru allt að 6.000.000.- kr.
Ferða- og menntunarstyrkir – fyrir félagsmenn Hagþenkis, fyrri úthlutun.
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis – fyrri úthlutun.
Rétt til að sækja um ferða- og menntastyrk hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Einungis er heimilt að sækja um vegna ferða sem hafa verið farnar. Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.
Umsækjendur stofna aðgang og sækja um í gegnum mínar síður á vef Hagþenkis. Nánari upplýsingar og úthlutunarreglur eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Hafnarstræti 5, 3 hæð 101 Reykjavík / Sími 551-9599 / hagthenkir@hagthenkir.is