Hagþenkir auglýsir eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.

 


Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum skólaárin 2011-2012.

Til úthlutunar eru allt að 5.500.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum

Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjónvarpi árin 2010–2012, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum.

Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins:www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist og gildir hún sem kvittun.