Hagþenkir auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntastyrki

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki, síðari úthlutun. Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 27.  september.

 

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum skólaárin 2015-2016. Til úthlutunar eru allt að 5.000.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum
Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjónvarpi árin 2014–2017, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna IHM, Innheimtumiðstöðvar gjalda, af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum. Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2017 – fyrir félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða á þessu ári. Umsækjendur sem hljóta úthlutun þurfa að senda í gegnum heimasíðu Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót. Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.

Nánari upplýsingar
Úthlutunarreglur, rafræn umsóknareyðublöð og eyðublað fyrir skilagreinar er hér á sláinni til vinstri á heimasíðu félagsins.

Leiðbeiningar
Umsækjendur fá rafræna staðfestingu, kennimark, um að umsókn hafi borist en það gerist skömmu eftir að hún hefur verið vistuð, það er enginn send takki. Kennimarkið gildir sem kvittun og hægt að opna umsókn með því þar til frestur rennur út. 

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7. 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is