Gestaíbúð á Skriðuklaustri

Senda skal umsókn til Gunnarsstofnunar, Skriðuklaustri, 701 Egilsstaðir.

 

Klaustrið er dvalarstaður fyrir lista- og fræðimenn, íslenska sem erlenda. Klaustrið er lítil tveggja herbergja íbúð í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri. Þar sem Skriðuklaustur er í 37 km fjarlægð frá Egilsstöðum geta þeir gestir sem ekki hafa bíl til umráða fengið far út í Egilsstaði með starfsmönnum Gunnarsstofnunar til að kaupa helstu nauðsynjar. Borðbúnaður, sængur, sængurlín, handklæði og helstu hreinlætisvörur eru í íbúðinni. Í íbúðinni er auk þess tölva og þráðlaus nettenging.
Dvalargestir geta fengið íbúðina til afnota í 3-5 vikur til að vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum. Samkvæmt reglum um úthlutun skulu verkefni er varða Gunnar Gunnarsson, Austurland eða austfirsk fræði njóta forgangs.

Sækja skal um dvöl skriflega. Hægt er að nálgast upplýsingar og umsóknareyðublað á vefslóðinni www.skriduklaustur.is
Umsóknarfrestur fyrir árið 2009 er til 15. júní nk.
Allar nánari upplýsingar fást hjá staðarhaldara Halldóru Tómasdóttur í síma 860 2902 eða á netfangi halldora@skriduklaustur.is