Dr. Águst Einarsson kynnir niðurstöður sínar um hagræn áhrif ritlistar

Dr. Ágúst Einarsson flytur erindi um niðurstöður rannsókna sinna á íslenskum bókamarkaði sem birtar eru í nýútkominni bók hans, Hagræn áhrif ritlistar. Í skrifum sínum leggur Ágúst fram 10 stefnumarkandi aðgerðir til að efla ritlist hérlendis. Þar nefnir hann meðal annars tillögu sína um niðurfellingu virðisaukaskatts á bækur, tímarit og blöð frá ársbyrjun 2016. Einnig aukin framlög til Bókasafnssjóðs og bókasafna, langtímaáætlun um eflingu lesskilnings og hvernig efla megi námsbókaútgáfu á íslensku. Kynningarfundurinn verður haldinn laugardaginn 8. nóvember kl. 11-12 í Norræna húsinu. Umræður verða í lok erindis. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar fyrir fundinn frá kl. 10:30.

Að erindinu standa Félag íslenskra bókaútgefenda – FIBUT, Rithöfundasamband Íslands, Norræna húsið, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Miðstöð íslenskra bókmennta – Icelandic Literature CenterHagþenkir og Þot -Bandalagþýðendaogtúlka