Bókaðu stund fyrir bók! Lestrarhvatning til þjóðarinnar

Meðaltími Íslendinga í bóklestur hefur farið minnkandi undanfarið og fleiri segjast aldrei lesa bækur. Þessari þróun vill Miðstöð íslenskra bókmennta gjarnan snúa við með lestrarhvatningu fyrir fullorðið fólk undir yfirskriftinni Bókaðu stund fyrir bók.

Markmið lestrarhvatningarinnar er að fá fólk til að gefa sér tíma til lesturs og gera bóklestur að raunhæfum hluta af daglegu lífi. Áhersla er lögð á jákvæða hvatningu og einfaldar, aðgengilegar leiðir til að auka lestur hjá fullorðnum um allt land. Þá er sérstaklega hvatt til þess að fyrirtæki, félög og stofnanir taki virkan þátt og nýti lestrarhvatninguna til að styðja við bókvænni lífsstíl og andlega velsæld.

Með Bókaðu stund fyrir bók viljum við minna á að lestur þarf hvorki að vera tímafrekur né flókinn heldur einföld og nærandi stund sem hefur jákvæð áhrif á vellíðan, einbeitingu og lífsgæði.

Á vefnum bokastund.is má finna upplýsingar um hvatninguna og fjölbreyttar hugmyndir að því hvernig bæta má bóklestri inn í daglegt líf. Þar er einnig fjallað um hvernig vinnustaðir geta lagt sitt af mörkum, til dæmis með lestraráskorunum, bókagjöfum, bókaklúbbum eða sameiginlegum lestrarstundum.

Auglýsingastofan Kontor gerir kynningarefni hvatningarinnar.