Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki

Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 6. apríl 2009. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Eru styrkirnir ætlaðir til að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda, verkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Hér falla undir skáldverk í víðri merkingu þess orðs til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt annað, og leitast er eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum.Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vefsíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is. Frekari upplýsingar fást á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.

 

Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.