Bókakynning á Borgarbókasafninu – rit tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis

""Bókakynning á Borgarbókasafninu – rit tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis
Borgarbókasafnið | Menningarhús Grófinni 2. febrúar kl. 15.00 – 17. Um er að ræða samstarfsverkefni höfundanna, Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafnsins.
 
Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings en árið 2006 var byrjað að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu. Viðurkenningaráð Hagþenkis, skipað félagsmönnum, stendur að valinu.
Sjá fyrri tilnefningar: https://hagthenkir.is/tilnefningar-fra-upphafi
Viðurkenningarhafar Hagþenkis: https://hagthenkir.is/vidurkenningar-fra-upphafi
 
DAGSKRÁ

 

15:00–15:10
Rósa Rut Þórisdóttir
Hvítabirnir á Íslandi. Bókaútgáfan Hólar.
Yfirgripsmikið safn frásagna um átök manna og hvítabjarna, unnið upp úr óvenjulegu gagnasafni sem nær allt frá landnámi til okkar daga; efni sem höfðar til allra aldurshópa.
 
15:10 – 15:20
Axel Kristinsson
Hnignun, hvaða hnignun? Goðsögnin um niðurlægingartímabilið í sögu Íslands. Sögufélag.
Ögrandi söguskoðun og eftirtektarverður frásagnarstíll höfundar mynda öfluga heild.
 
15:20-15:30
Árni Daníel Júlíusson
Af hverju strái. Saga af byggð, grasi og bændum 1300–1700. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Háskólaútgáfan.
Vönduð sagnfræðirannsókn og frumleg framsetning býður lesandanum í spennandi tímaferðalag aftur til lítt þekktra alda Íslandssögunnar.
 
15:30-15:40
Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Flóra Íslands. Blómplöntur og byrkningar. Vaka-Helgafell.
Einstakt bókverk þar sem framúrskarandi fræðimennska, væntumþykja fyrir viðfangsefninu og listræn útfærsla mun sameina kynslóðir í lestri.
 
Hlé
 
16:00-16:10
Kristín Svava Tómasdóttir
Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar. Sögufélag.
Brautryðjandaverk um sögu kláms og kynverundar á Íslandi sem byggir á afhjúpandi rannsóknum á vandmeðförnu efni.
 
16:10-16:20
Ólafur Kvaran
Einar Jónsson myndhöggvari. Verk, táknheimur og menningarsögulegt samhengi. Hið íslenska bókmenntafélag.
Glæsileg og ríkulega myndskreytt bók um hugmyndafræði verka Einars og tengsl hans við alþjóðlegar listastefnur og íslenska menningu á fyrstu áratugum 20. aldar.
 
16:20-16:30
Alda Björk Valdimarsdóttir
Jane Austen og ferð lesandans. Skáldkonan í þremur kvennagreinum samtímans. Háskólaútgáfan.
Ítarleg og áhugaverð rannsókn á ímynd Jane Austen í samtímanum og áhrifum hennar á kvennamenningu, einkum ástarsögur, skvísusögur og sjálfshjálparbækur

16:30-16:40
Sverrir Jakobsson
Kristur. Saga hugmyndar. Hið íslenska bókmenntafélag.
Fróðleg og sannfærandi framsetning á því hvernig hugmyndir manna um Krist þróuðust og breyttust gegnum aldirnar í meðförum þeirra sem á hann trúðu.
 
Tilnefndir höfundar sem geta ekki mætt eru:
 
Bára Baldursdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir
Krullað og klippt. Aldarsaga háriðna á Íslandi. Hið íslenska bókmenntafélag.
Faglega fléttað verk byggt á hárfínni heimildavinnu um sögu starfsgreinar þar sem sjónum er ekki síst beint að ólíkri kynjamenningu.
 
Magnús Þorkell Bernharðsson
Mið-Austurlönd. Fortíð, nútíð og framtíð. Mál og menning.
Sérlega aðgengileg og fræðandi bók um nútímasögu Mið-Austurlanda, sögu- og menningarlegt samhengi nýliðinna viðburða og togstreitu milli heimshluta.
 
Nánari upplýsingar veitir:
 
Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastýra
Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Netfang: hagthenkir@hagthenkir.is
Sími: 551 9599
www.hagthenkir.is