Auslýst er eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki

 

 

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.

Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera, skólaárin 2009–2010, vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum.

Til úthlutunar eru 5.500.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum

Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýnd voru í sjónvarpi árin 2008–2010 um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum.

Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2011 – fyrir félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna síðari úthlutunar 2011. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og  eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem hafa verið farnar á árinu. Ujsækjendur eiga að senda skrifstofu Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skiilagrein fyrir áramót.

Til úthlutunar eru 1.500.000.- kr

 Umsóknarfrestur 10. september  21. september 2011.

 Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins:www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist og gildir hún sem kvittun.

 

 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna

Hringbraut 121, 4.h. 107 Reykjavík

Netfang: hagthenkir@hagthenkir.is – Sími 551-9599