Augslýst er eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki haustsins

 

 

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.

Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera og og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum, skólaárin 2010 – 2011.

Til úthlutunar eru allt að 5.500.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum

Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjónvarpi árin 2009–2011, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum.

Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2012 – fyrir félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem farnar voru á árinu. Umsækjendur skulu senda skrifstofu Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót.

Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr

Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins:www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist og gildir hún sem kvittun.