Auglýsing um styrki og þóknanir Hagþenkis 2010

 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um eftirtalda styrki og þóknanir. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist.

 

 

Starfsstyrkir til ritstarfa

Óskað er eftir umsóknum um starfsstyrki Hagþenkis vegna ritstarfa árið 2010. Til úthlutunar eru 12.000.000.- kr.

 

Starfsstyrkir vegna gerðar fræðslu- og heimildarmynda

Til úthlutunar eru 900.000.- kr.

 

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar  o. fl.

Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera, skólaárin 2007–2009, vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum og vegna blaðagreina eftir félaga í Hagþenki sem kunna að hafa verið notaðar af IMG-Fjölmiðlavaktinni ehf. árið 2009.

Til úthlutunar eru 4.500.000.- kr.

 

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum

Hér með er auglýst eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og – þáttum sem sýnd voru í sjónvarpi árin 2007–2009 um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af myndböndum og myndbandstækjum.

Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

 

Ferða- og menntunarstyrkir 2010 – fyrri úthlutun

Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna fyrri úthlutunar 2010. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem hafa verið farnar. Í haust verður verður auglýst aftur eftir umsóknum vegna síðari úthlutunar.

Til úthlutunar eru 2.500.000.- kr

 

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl

Sækja skal um þóknanir og starfsstyrki á þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðu félagsins, www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu um að umsókn hafi borist. Á heimasíðunni er einnig að finna allar upplýsingar og úthlutunarreglur. Fylgiskjöl með umsóknum um styrki til ritstarfa skal senda til skrifstofu félagsins og sækja aftur fyrir 15. september næstkomandi, en eftir það verður þeim eytt.