Auglýsing um styrki Hagþenkis – umsóknarfrestur til 18. apríl kl. 12

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um eftirtalda styrki:

 

 
Starfsstyrkir til ritstarfa
Til úthlutunar eru 15.000.000.- kr.
 
Ferða- og menntunarstyrkir fyrir félagsmenn Hagþenkis
Til úthlutunar á vorönn eru 2.000.000.- kr.
 
Umsóknarfrestur til 18. apríl kl. 12.
 
Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn umsóknareyðublöð og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is
Umsækjendur fá rafræna staðfestingu í tölvupósti um að umsókn hafi borist og gildir kennimarkið sem kvittun og það gefur færi á að lagfæra eða breyta umsókn þar til umsóknarfresti lýkur.
 
Hagþenkir, Þórunnartúni 2. 105. Rvk. Sími 551-9599/ hagthenkir@hagthenkir.is