Auglýsing um styrki 2016. Umsóknarfrestur rennur út 12. september kl. 15.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og menntunarstyrki, síðari úthlutun.

Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum skólaárin 2014-2015. Til úthlutunar eru allt að 5.000.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum
Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir voru í sjónvarpi árin 2013–2015, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna IHM, Innheimtumiðstöðvar gjalda, af geisladiskum, myndböndum og myndbandstækjum. Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2016 – fyrir félagsmenn Hagþenkis, síðari úthlutun
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða á þessu ári. Umsækjendur sem hljóta úthlutun þurfa að senda í gegnum heimasíðu Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót. Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.

Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn umsóknareyðublöð og eyðublað fyrir skilagreinar eru á heimasíðunni. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu, kennimark, um að umsókn hafi borist og það gildir sem kvittun.

Hagþenkir/ Þórunnartún 2, 2 hæð. Skrifstofa nr. 7. 105 Reykjavík / Sími 551-9599 / hagthenkir@hagthenkir.is