Auglýsing um starfsstyrki Hagþenkis 2008

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, auglýsir eftir umsóknum um styrki og þóknanir. Vinsamlegast athugið að sækja skal um þóknanir og starfsstyrki á þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðu félagsins. Á síðunni er einnig að finna allar upplýsingar og úthlutunarreglur. Fylgiskjöl með umsóknum skal sækja aftur fyrir 15. september næstkomandi en eftir það verður þeim eytt.

 

Starfsstyrkir til ritstarfa
Óskað er eftir umsóknum um starfsstyrki Hagþenkis vegna ritstarfa árið 2008. Til úthlutunar eru 8.000.000.- kr.

Starfsstyrkir vegna gerðar fræðslu- og heimildarmynda
Til úthlutunar eru 1.000.000.- kr.

Þóknanir vegna ljósritunar o. fl.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum hins opinbera skólaárin 2005―2007 og vegna blaðagreina eftir félaga í Hagþenki sem kunna að hafa verið notaðar af IMG-Fjölmiðlavaktinni ehf. árið 2006. Til úthlutunar eru 3.650.000.- kr.

Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum
Hér með er auglýst eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétthafar á fræðslu- og heimildarmyndum og – þáttum sem sýnd voru í sjónvarpi árin 2005―2007, um þóknanir sem Hagþenkir greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna Innheimtumiðstöðvar gjalda af myndböndum og myndbandstækjum.
Til úthlutunar eru allt að 200.000.- kr.

Ferða- og menntunarstyrkir 2008 – fyrri úthlutun
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki Hagþenkis vegna fyrri úthlutunar 2008. Rétt til að sækja hafa þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuldlausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem hafa verið farnar. Í haust verður auglýst eftir umsóknum vegna síðari úthlutunar.
Til úthlutunar eru 3.000.000. – kr.