Aðalfundur 20. mars kl. 17:45

Aðalfundur Hagþenkis var haldinn þriðjudaginn 20. mars kl. 17:45 í sal Bókasafns Dagsbrúnar 4. hæð, Þórunnartúni 2 / Skúlatúni 2. 105 Reykjavík. 
 

 

Dagskrá verður sem hér segir:

Skýrsla stjórnar og reikningar
Skipting tekna
Kjör stjórnar, formanns og fulltrúaráðs
Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta reikningsár
Önnur mál 
Jón Yngi Jóhannsson formaður gaf kost á sér til endurkjörs og hið sama á við um meðstjórnendur sem eru: Sigmundur Einarsson, Þorsteinn Helgason, Sigríður Stefánsdóttir og Ásdís Lovísa Grétarsdóttir og þannig er stjórnin skipuð næsta ár.