Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Innheimtumiðstöð rétthafa – IHM auglýsir Hagþenkir eftir skráningum handritshöfunda fræðslu og heimildamynda í rétthafagátt félagsins, óháð félagsaðild. Skráningarfrestur er til 18. maí kl. 15:00.
Rétthafagreiðslur til höfunda fræðslu- og heimildarmynda sem voru sýndar 2025
Handritshöfundar að fræðslu- og heimildamyndum, sem sýndar hafa verið í línulegri dagskrá ber að skrá sig og sýnd verk sín í rétthafagátt á heimasíðu Hagþenkis til að hljóta rétthafagreiðslur. Skráning í rétthafagáttina er varanleg en skrá þarf ný verk innan tilgreinds umsóknarfrests. Rétthöfum ber einnig að skrá í gáttina breytingar á heimilisfangi, netfangi, bankareikningi og tilgreina nákvæma hlutfallsskiptingu í nýjum verkum ef það á við. Greitt skal eftir flutningstíma í mínútum á grundvelli upplýsinga frá viðkomandi ljósvakamiðlum.
3% – sjóðurinn
greidda rétthafagreiðslu frá Hagþenki árið 2025, er bent á að hafa samband við skrifstofu Hagþenkis og sækja síðan skriflega um 3 % – sjóðinn. Umsóknarfrestur er til 18. maí kl. 15.
Rétthafagáttin og úthlutunarreglur eru á heimasíðu félagsins: www.hagthenkir.is Skráning í rétthafagáttina fer í gegnum – Mitt svæði, efst til hægri á heimasíðunni.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna / Hafnarstræti 5. 101 Reykjavík / 101 Reykjavík / Sími 551-9599 / www.hagthenkir.is / hagthenkir@hagthenkir.is