Aðalfundur Hagþenkis 14. apríl kl. 17:00 í sal Neskirkju

Dagskrá verður sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar og reikningar.
  2. Kjör stjórnar, fulltrúaráðs og endurskoðenda.
  3. Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta reikningsár.
  4. Tillaga formanns um skiptingu útdeildra tekna.
  5. Umsýsla réttindagreiðslna og almenn stefna.
  6. Tilnefning endurskoðenda.
  7. Samþykki árlegrar gagnsæisskýrslu, sbr. 23. gr. l. nr. 88/2019.
  8. Tillaga stjórnar um viðbót við 6. gr laga, þar sem fjallað er stjórn og skyldur hennar.

„Stjórn Hagþenkis afgreiðir umsóknir um þóknanir og ferða og menntastyrki og hún skipar í úthlutunarráð starfsstyrkja til ritstarfa og handritsgerðar og í viðurkenningarráð. Ráðin eru skipuð þremur félagsmönnum af mismunandi fræðasviðum til tveggja ára í senn. Stjórn og úthlutunarráðin skulu vegna tiltekinna umsóknar virða vanhæfisreglur sem taldar eru upp í stjórnsýslulögum (nr. 37/1993).“

6. gr. fyrir breytingu

Stjórn félagsins annast daglegan rekstur samtakanna og hefur eftirlit með starfseminni, þ.á m. umsýslu réttindagreiðslna. Stjórn vinnur í þágu samtakanna í samræmi við samþykktir þessar og lög og reglur eins og þau eru hverju sinni.

Stjórn er heimilt ráða sér framkvæmdastjóra til að sinna daglegum rekstri félagsins.. Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Framkvæmdastjóri skal sitja fundi stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Framkvæmdastjóri undirbýr fundi stjórnar og hefur umsjón með framkvæmd þeirra ákvarðana sem stjórn tekur.  Framkvæmdastjóri er prókúruhafi félagsins. Stjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin og verksvið hans nánar skilgreint.

Félagið skal hafa vefsíðu. Á vefsíðunni skal m.a. birta samþykktir og upplýsingar um stjórn samtakanna, almenna úthlutunarstefnu vegna réttindagreiðslna og aðrar upplýsingar sem skulu aðgengilegar á opinberum vef lögum samkvæmt

6. gr. eftir breytingu

Stjórn félagsins annast daglegan rekstur samtakanna og hefur eftirlit með starfseminni, þ.á m. umsýslu réttindagreiðslna. Stjórn vinnur í þágu samtakanna í samræmi við samþykktir þessar og lög og reglur eins og þau eru hverju sinni.

Stjórn Hagþenkis afgreiðir umsóknir um þóknanir og ferða og menntastyrki og hún skipar í úthlutunarráð starfsstyrkja til ritstarfa og handritsgerðar og í viðurkenningarráð. Ráðin eru skipuð þremur félagsmönnum af mismunandi fræðasviðum til tveggja ára í senn. Stjórn og úthlutunarráðin skulu virða vanhæfisreglur sem taldar eru upp í stjórnsýslulögum (nr. 37/1993).

Stjórn er heimilt ráða sér framkvæmdastjóra til að sinna daglegum rekstri félagsins. Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Framkvæmdastjóri skal sitja fundi stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Framkvæmdastjóri undirbýr fundi stjórnar og hefur umsjón með framkvæmd þeirra ákvarðana sem stjórn tekur.  Framkvæmdastjóri er prókúruhafi félagsins. Stjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin og verksvið hans nánar skilgreint.

Félagið skal hafa vefsíðu. Á vefsíðunni skal m.a. birta samþykktir og upplýsingar um stjórn samtakanna, almenna úthlutunarstefnu vegna réttindagreiðslna og aðrar upplýsingar sem skulu aðgengilegar á opinberum vef lögum samkvæmt.

  1. Önnur mál.

Framboð til stjórnar – önnur framboð skulu berast í síðast lagi viku fyrir aðalfund

Gunnar Þór Bjarnason hættir sem formaður og í stjórn og er honum þakkað sitt góða framlag.

Formaður er kosinn tveggja ára í senn

Henry Alexander Henrysson býður sig fram til formanns.

Framboð til stjórnar

Rán Tryggvadóttir, býður sig fram.

Ásdís Thoroddsen, býður sig fram til endurkjörs.

Snæbjörn Guðmundsson, býður sig fram til endurkjörs.

Súsanna Margrét Gestsdóttir, býður sig fram til endurkjörs.

Framboð til fulltrúaráðs – formaður Hagþenkis er formaður fulltrúaráðs

Kristján Leósson, býður sig fram.

Sólrún Harðardóttir, býður sig fram til endurkjörs.

Halldóra Jónsdóttir, býður sig fram til endurkjörs.

Þórunn Sigurðardóttir, býður sig fram til endurkjörs.

Nánari upplýsingar veitir

Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra.