Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2024

 

Formaður Hagþenkis, Gunnar Þór Bjarnason kynnti tilnefningar Hagþenkis í Borgarbókasafninu í Grófinni þann 22. janúar að viðstöddum tilnefndum höfundum og gestum þeirra, stjórn Hagþenkis og viðurkenningarráðinu. Í því sátu Halldóra Jónsdóttir, Kristján Leósson, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Unnur Þóra Jökulsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Friðbjörg Ingimarsdóttir er verkefnastýra ráðsins sem hittist vikulega frá miðjum október til miðs janúar þegar tilnefningarnar voru ákvarðaðar. Laugardaginn 1. febrúar kl. 13.-15. kynna höfundar verklag sitt og bækurnar í Borgarbókasafninu í Grófinni. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt í Þjóðabókhlöðunni í lok febrúar við hátíðlega athöfn og hlýtur sá höfundur 1.500.000 kr. 

Eftirfarandi rit og höfundar eru tilnefndir:

 

Árni Heimir Ingólfsson.

Tónar útlaganna. Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf. ÚtgefandiHið íslenska bókmenntafélag.

Vel skrifuð örlagasaga þriggja einstaklinga sem umbyltu tónlistarmenningu landsins. Bókin er ríkulega studd heimildum og prýdd mörgum myndum.

Ásdís Ingólfsdóttir.

Undirstaðan – Efnafræði fyrir framhaldsskóla. Útgefandi Iðnú.

Vandað kennsluefni í rafrænu formi sem kynnir undirstöðuatriði efnafræðinnar. Efnið er lagað að nútímaþörfum nemenda og kennara með margskonar innbyggðum hjálpartækjum, auk fjölda vísana í ítarefni sem nálgast má á veraldarvefnum.

Erla Hulda Halldórsdóttir.

Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809–1871. ÚtgefandiBjartur.

Áhrifarík ævisaga sem varpar nýju ljósi á 19. öldina og veitir einstaka innsýn í heim kvenna. Byggir á ómetanlegum bréfum Sigríðar til bróður síns sem spanna hálfa öld.

Guðjón Friðriksson.

Börn í Reykjavík. ÚtgefandiForlagið.

Fræðandi og forvitnileg bók um þær stórfelldu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi og aðstæðum barna í borginni í hálfa aðra öld. Fallegur prentgripur með  fjölda einstakra ljósmynda.

Guðmundur Jónsson (ritstjóri).

Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi. Útgefandi Sögufélag.

Yfirgripsmikið verk sem er afrakstur margra ára rannsókna á lífsháttum á Íslandi við upphaf 18. aldar. Unnið er á nýstárlegan, þverfaglegan hátt úr frumheimildum sem eru einstæðar á alþjóðavísu.

Gunnar Harðarson.

Fingraför spekinnar. Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

Vandað og vel skrifað ritgerðasafn sem varpar nýju ljósi á heimspekilega hugsun í íslenskum fornritum. Hugmyndir, hugtök og rökfærslur eru skýrð í ljósi heimspeki miðalda.

Ingunn Ásdísardóttir.

Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir i nýju ljósi. Hið íslenska bókmenntafélag.

Höfundur kannar frumheimildir um jötna og jötnameyjar í norrænum kveðskap og forminjum óháð túlkun kristinna miðaldamanna og kemst að frumlegum og áhugaverðum niðurstöðum í aðgengilegu fræðiriti.

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir.

Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum. ÚtgefandiForlagið

Fróðleg og falleg barnabók sem opnar persónulega leið inn í sögu merkilegs safns. Samspil myndefnis og texta varpar áhugaverðu ljósi á árdaga íslenskrar nútímalistasögu.

Skafti Ingimarsson.

Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968. Útgefandi Sögufélag.

Mikilvægt innlegg í íslenska stjórnmálasögu tuttugustu aldarinnar. Verkið veitir nýja innsýn í þátttöku almennings í flokksstarfi og verkalýðsbaráttu um land allt.

Þórir Óskarsson.

Svipur brotanna. Líf og list Bjarna Thorarensen. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.

Metnaðarfull ævisaga byggð á ítarlegum rannsóknum og hugmyndasögulegri greiningu. Ljóðlist skáldsins er sett í samhengi við þjóðlegan arf og alþjóðlega strauma.