Á hverju ári velja bóksalar sínar uppáhaldsbækur og tilkynna í bókmenntaþættinum Kiljunni á RÚV.
Úrslit kynntu Starri Reynisson frá Eymundsson á Austurstræti og Kristín Nanna Einarsdóttir úr Bókabúð Sölku á Hverfisgötu.
Í flokki fræðibóka, handbóka og ævisagna:
- sæti: Andlit til sýnis eftir Kristínu Loftsdóttur
- sæti: Álfar eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flygenring
- sæti: Morðin í Dillonshúsi eftir Sigríði Dúu Goldsworthy
Í flokki íslenskra barna- og ungmennabóka:
- sæti: Hrím eftir Hildi Knútsdóttur
- sæti: Orri Óstöðvandi: Jólin eru að koma eftir Bjarna Fitzson
- sæti: Mömmuskipti eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur
Í flokki skáldverka:
- sæti: Duft – Söfnuður fallega fólksins eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur
- sæti: Deus eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur
- sæti: DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Í flokki ljóðabóka:
- sæti: Meðan Glerið sefur og Dulstirni eftir Gyrði Elíasson
- sæti: Flagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur
- sæti: Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Í flokki þýddra skáldverka:
- sæti: Minningaskrínið eftir Kathryn Hughes í þýðingu Ingunnar Snædal
- sæti: Heaven eftir Mieko Kawakami í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar
- sæti: Paradísarmissir eftir John Milton í þýðingu Jóns Erlendssonar
Í flokki þýddra barna- og ungmennabóka:
- sæti: Húsið hans afa eftir Meritxell Marti og Xavier Salomó í þýðingu Elínar G. Ragnarsdóttur.
- sæti: Júlían í brúðkaupinu eftir Jessica Love í þýðingu Ragnhildar Guðmundsdóttur
- sæti: Ofurskrímslið eftir David Walliams í þýðingu Guðna Kolbeinssonar
Besta bókakápa ársins að mati bóksala: Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, hönnuð af Ragnari Helga Ólafssyni